Íslenski ferðavefurinn

  • endursetja

Eldgos á Íslandi

Eyjar í Atlantshafi, sem orðið hafa til á rekás Atlantshafshryggjarins: Asoreyjar, Bermuda, Madeira, Kanaríeyjar, Ascension, St. Helena, Tristan da Cunha o.fl.

Gliðnun Atlantshafshryggjar byrjaði að norðanverðu fyrir u.þ.b 150 milljónum ára og fyrir 90 m. ára að sunnanverðu.

Ísland er stærsta eyjan á Atlantshafshryggnum vegna þess, að saman fara plötuskil eða rekás hryggjarins og heitur reitur, sem plöturnar hafa færzt yfir og er enn þá undir landinu. Landið færist smám saman norðvestur yfir hann. Þetta samspil er einsdæmi á Atlantshafshryggnum. Ísland væri líklega ekki til, ef einungis hefðu komið til gos vegna landreks. Landið væri allt öðruvísi í lögun, ef heiti reiturinn hefði einn valdið gosum, líklega eitthvað í líkingu við Hawaii.

Flekarekið er í austur og vestur, en ameríska og evróasíska kerfið færist saman í norðvestur yfir heita reitinn. Hægt er að rekja feril, sem heitir reitir mynda á plötunum vegna þess, að þær færast yfir þá líkt og þykk stálplata sé logskorin, loginn er fastur en flekarnir færast. Ofan á heita reitnum, undir mestöllu landinu er 20 – 100% hlutbráðið lag. Það er ofan á möttulstreyminu á ca. 5 – 20 km dýpi, þannig að þar er nóg efni í eldgos.

Heiti reiturinn veldur gosum á Suðurlandsgosbeltinu (Surtsey, Vestmannaeyjar, Katla, Eyjafjallajökull, Tindfjöll, Hekla, Mýrdalsjökull, Lakasvæðið, Veiðivatnasvæðið og Vatnajökull). Hann er kominn austur fyrir rekásinn á Reykjanesi, sem er samt enn þá mjög gosvirkur vegna austur-vestur reksins. Rekásar um Snæfellsnes og Húnaflóa hættu að vera virkir fyrir u.þ.b. 7 millj. ára. Þar var heiti reiturinn fyrir u.þ.b. 60 millj. ára nærri núverandi Færeyjum. Hann skildi þá eftir basalt á Grænlandi (Gunnbjörnsfjall) og neðansjávarhrygginn til Færeyja.

Núverandi lega miðju heita reitsins er undir Trölladyngju og er hann 275-375 km djúpur. Hann nær líklega undir meginhluta Vatnajökuls og allan Hofsjökul, þar sem stendur líklega stærsta eldfjall landsins (askja) undir ísnum. Kvikuþrær (100% bráðið berg) eru 100-1000 km3 að stærð og eru á u.þ.b. 10 km dýpi undir eldvirku beltunum. Þær fæða kvikuhólf undir megineldstöðvunum. Lögun þrónna sést vel á yfirborðinu, sbr. Krafla, þar sem hún er á u.þ.b. 3 km dýpi, en kvikuhólfið enn þá grynnra (700 m). Undir Heklu er ekkert kvikuhólf, en kvikuþróin er á u.þ.b. 8 km dýpi, 40 km löng. Hólf eru ca. 10% af stærð þróa, t.d. 42 km3 undir Kröflu.

Þegar gýs í Kröflu, kemur kvikan úr hólfinu en úr þrónni, sem er dýpra, þegar gýs í Gjástykki. Þetta hafa rannsóknir á efnasamsetningu hrauna á hvorum stað sannað. Líparít er ekki til á Íslandi heldur ríólít, dasít, millidasít o.fl. súrar bergtegundir. Þær eru u.þ.b. 10% af íslenzku bergi. Þóleiít er algengasta tegund basalts á landinu, en það skiptist í fjölda tegunda innbyrðis. Hreinn ólivínsandur finnst í Háleyjarbungu á Reykjanesi, skammt frá saltverksmiðju. Jökull var útbreiddur lengur á Íslandi en menn héldu. Jöklullaust varð fyrir ca. 9000 árum. Jökulskeið (ca. 30 á ísöldinni) voru ca. 100.000 ára löng og hlýskeið á milli þeirra ca 10000 ár.  Jökulskeið koma og fara mjög snöggt (ca. 50 – 100 ár). Sveiflur eru sneggri en áður var talið, þótt tiltölulega langan tíma taki að ná hámarkinu.

„Jökull“ grein eftir Ólaf Ingólfsson o.fl. „Iceages” eftir Jon Ericson, fæst í Bóksölu Stúdenta.

Landshlutar ferðavísir

Allar ábendingar eru velkomnar. Reynum að hafa staðreyndir eins réttar og mögulegt er.

Veldu landshluta

nat.is er upplýsinga- og ferðavefur um Ísland sem var stofnaður 1998.  Íslenska útgáfan er is.nat.is.    ( nat@nat.is )