Íslenski ferðavefurinn

  • endursetja

Ferðafélag Íslands

Þverbrekknamúli

Ferðafélag Íslands ( FÍ )

Ferðafélag Íslands er áhugamannafélag um átta þúsund félagsmanna og hefur frá stofnun, árið 1927, unnið að margvíslegri þjónustu fyrir ferðamenn.

Tilgangur félagsins er að stuðla að ferðalögum á Íslandi og greiða fyrir þeim. Þetta gerir félagið meðal annars með skipulagningu fjölbreyttra ferða ásamt uppbyggingu og rekstri fjallaskála víða um land. Jafnframt með viðamiklu útgáfustarfi, merkingu gönguleiða og upplýsingagjöf.

Auk fjölbreyttra ferða er margs konar félagslíf innan vébanda FÍ, svo sem myndakvöld, námskeið og þemaferðir af ýmsu tagi. Margvíslegir fjallgöngu- og hreyfihópar starfa einnig undir merkjum félagsins.

Deildir og félög

Innan vébanda Ferðafélags Íslands starfa 13 deildir um land allt. Deildir FÍ starfa samkvæmt lögum Ferðafélagsins standa fyrir ferðum, reka gistiskála og sinna fræðslu og útgáfustarfi í heimabyggð.

Ferðafélag Íslands stofnaði Ferðafélag barnanna árið 2009 með það að höfuðmarkmiði að hvetja börn og foreldra til útiveru og samveru í náttúru Íslands. Allar ferðir Ferðafélags barnanna eru farnar á forsendum barna og sniðnar að þörfum þeirra.

Ferðafélag unga fólksins, FÍ Ung, var stofnað sumarið 2015 með það markmið að hvetja ungt fólk á aldrinum 18-25 ára til að ferðast um Ísland, kynnast landinu og njóta útiveru í góðum félagsskap.

Útgáfa

Á hverju ári gefur Ferðafélag Íslands út heimilda- og fræðslurit, kort og bækur, að ógleymdri árbók félagsins. Fyrsta árbókin kom út árið 1928 og hefur síðan komið út árlega í óslitinni röð og er einstæður bókaflokkur um land og náttúru. Þá hefur Ferðafélagið um árabil gefið út sérrit með leiðarlýsingum á göngusvæðum eða öðrum fróðleik er tengist náttúru, sögu og lífríki afmarkaðs svæðis.

Texti: Af vef fi.is

Hér eru skálar Ferðafélags Íslands:

FI Álftavatn á Suðurlandi
FI Fimmvörðuháls / Baldvinsskáli á Suðurlandi
FI Emstrur  Suðurlandi
FI Hagavatn á Suðurlandi
FI Hlöðuvellir á Suðurlandi
FI Hornbjargsviti á Vestfjörðum
FI Hrafntinnusker á Suðurlandi
FI Hvanngil á Suðurlandi
FI Hvítárnes á Kjalvegi
FI Landmannalaugar á Suðurlandi
FI Norðurfjörður / Valgeirsstaðir á Ströndum
FI Nýidalur á Suðurland Sprengisandur
FI Þjófadalir á Kjalvegi
FI Þórsmörk / Langidalur á Suðurlandi
FI Þverbrekknamúli Kjölur

Ferðafélag ÍslandsHér er hægt að fá nánari upplýsingar um Ferðafélag Íslands

Myndasafn

Í grennd

Ferðafélag Íslands Ferðast og Fræðast
Ferðafélag Íslands grasrótin í ferðaþjónustu á Íslandi !!! Ferðafélag Íslands er áhugamannafélag um níu þúsund félagsmanna og hefur frá stofnun, ár…
Hálendið, ferðast og fræðast
Þegar talað er um (Hálendið) miðhálendið, er yfirleitt miðað við landsvæði ofan 400 m hæðar yfir sjó. Þetta svæði nær yfir u.þ.b. 76% af flatarmáli la…

Allar ábendingar eru velkomnar. Reynum að hafa staðreyndir eins réttar og mögulegt er.

Veldu landshluta

nat.is er upplýsinga- og ferðavefur um Ísland sem var stofnaður 1998.  Íslenska útgáfan er is.nat.is.    ( nat@nat.is )