Íslenski ferðavefurinn

  • endursetja

Vötn á Skaga

Skagaheiði

Víða um land eru staðir og svæði utan alfaraleiðar, sem fáir hafa heimsótt – ekki nennt að leggja lykkju á sína. Þeir, sem ætla að kynnast landinu sínu í alvöru, láta slíkt ekki koma fyrir sig. Skaginn milli Húnaflóa og Skagafjarðar er eitt þessara svæða, sem borgar sig að skoða nánar. Landslagið þar er fagurt og minjar um forna búskaparhætti eru alls staðar innan seilingar. Veiðivötnin eru að mestu óplægður akur og mörg þeirra eru vel utan alfaraleiðar, þannig að þar er ró og friður. Veiðimenn og fjölskyldur þeirra eru yfirleitt fólk, sem nýtur umhverfisins ásamt veiðinni og gefur því gaum. Í textunum um vötnin eru víða nánari lýsingar á umhverfinu, hvernig færðin er að þeim og hve langt þau eru frá þjóðvegi.

 

Vötnin á Skaga

Myndasafn

Í grennd

Bergskáli á Skaga
Á Bergskála bjó refaskyttan Gunnar Einarsson og kenndi sig við Bergskála á Skaga. Hann var fæddur  árið 1901 og andast árið 1959. Lenti í tveimur alva…
Blönduós
Blönduós er kaupstaður, sem liggur beggja vegna ósa Blöndu. Hillebrandtshúsið var upphaflega byggt á Skagaströnd (Höfðakaupstað) árið 1733 og flutt ti…
Hvítabjörn, Ísbjörn
Hvítabjörn eða ísbjörn (Ursus maritimus) er fremur sjaldgæfur gestur á Íslandi núorðið en fyrrum, þegar   loftslag fór kólnandi á síðmiðöldum og allt …
Sauðárkrókur
Sauðárkrókur er kaupstaður innst í Skagafirði vestanverðum. Þar er blómleg útgerð og fiskvinnsla og öflug þjónusta við nágrannasveitir. Ferðaþjónusta …
Selvík, Skagaheiði
Selvík er bezti lendingarstaður Skagafjarðarmegin á Skaga. Rústir verbúða eru greinilegar á Selnesi við   víkina norðanverða. Þýzkaleiði gefur til kyn…
Skagaströnd. Höfðakaupsstaður
Skagaströnd er kauptún á vestanverðum Skaga milli Spákonufells og Spákonufellshöfða, sem gengur í sjó fram. Bærinn stendur við víkina sunnan höfðans. …
Skagi
Skagi er milli Húnaflóa og Skagafjarðar, u.þ.b. 50 km langur og 30 km breiður. Nyrzt er Skagaheiði, fremur láglend, en sunnar rísa há fjöll og dalir, …

Allar ábendingar eru velkomnar. Reynum að hafa staðreyndir eins réttar og mögulegt er.

Veldu landshluta

nat.is er upplýsinga- og ferðavefur um Ísland sem var stofnaður 1998.  Íslenska útgáfan er is.nat.is.    ( nat@nat.is )