Íslenski ferðavefurinn

  • endursetja

Laxárvötn – Nesvötn

Veiði á Íslandi

Laxárvatn og Nesvötn eru í Skagahreppi í A-Húnavatnssýslu. Laxárvatn er 0,28 km², dýpst 3-4 m og í 32 m hæð yfir sjó. Laxá rennur í gegnum það og til sjávar rétt norðan bæjarsins Saura, sem frægur er úr sögunni. Akfært er að vatninu og sæmilegur vegur til Klittaréttar norðan þess, sem er löngu aflögð. Þar eru bæði bleikja og urriði og lítið eitt af laxi.

Nesvötn eru 0,35 km², 3-4 m djúp og í 40 m hæð yfir sjó. Klittalækur rennur úr því til Laxárvatns, 500 m leið. Í vatninu er urriði og bleikja, 1-3 pund.

Vegalengdin frá Reykjavík er u.þ.b. 280 km og 16 km frá Skagaströnd.

Myndasafn

Í grend

Allar ábendingar eru velkomnar. Reynum að hafa staðreyndir eins réttar og mögulegt er.

Veldu landshluta

nat.is er upplýsinga- og ferðavefur um Ísland sem var stofnaður 1998.  Íslenska útgáfan er is.nat.is.    ( nat@nat.is )