Orkubú Vestfjarða HF var stofnað á grundvelli laga frá 2001. Orkubú Vestfjarða HF tók til starfa 1. júlí 2001. Orkubú Vestfjarða var fyrsta rafveitan, sem fékk öryggisstjórnarkerfi samþykkt af Neytendastofu. Í upphafi var eignarhlutdeild óbreytt frá því, sem var í sameignarfélaginu, en í apríl 2002 átti ríkissjóður allt hlutafé sveitarfélaganna og á nú allt hlutaféð.
Orkubú Vestfjarða var stofnað á grundvelli laga er samþykkt voru 1976, en þá hafði Orkunefnd Vestfjarða starfað í tæpt ár, og skilað tillögum sínum. Orkubú Vestfjarða var sameignarfyrirtæki ríkissjóðs og sveitarfélaganna í Vestfjarðarkjördæmi. Eignarhluti ríkissjóðs var 40% en sveitarfélaganna 60%, og skiptist eignarhlutdeild þeirra innbyrðis í hlutfalli við íbúatölu hverju sinni. Þessi skipting eignarhlutdeildar sveitarfélaganna byggir á þeirri hugsun, að rétt sé að hlutur hvers einstaklings í þessu almenningsfyrirtæki vegi jafn mikið, hvar sem hann er búsettur á Vestfjörðum.
Tilgangur fyrirtækisins samkvæmt lögum er:
að virkja vatnsafl og jarðhita á Vestfjörðum, þar sem hagkvæmt þykir.
að eiga og reka vatnsorkuver og dísilraforkustöðvar til raforkuframleiðslu, ásamt nauðsynlegum mannvirkjun til raforkuflutnings og raforkudreifingar.
að eiga og reka jarðvarmavirki og fjarvarmakyndistöðvar ásamt nauðsynlegu dreifikerfi.
að annast virkjanarannsóknir og aðrar undirbúningsrannsóknir eftir því sem ákveðið er hverju sinni.
Samkvæmt þessu nær hlutverk fyrirtækisins til alls orkuiðnaðar á Vestfjörðum, hvort heldur orkugjafinn er vatnsafl, jarðvarmi eða einhver annar.
Orkubú Vestfjarða hóf starfsemi sína 1. janúar 1978, með yfirtöku á rekstri Rafveitu Ísafjarðar, Patrekshrepps og hluta Rafmagnsveitna ríkisins í Vestfjarðarkjördæmi. Ári síðar bættust við Rafveita Snæfjalla, Reykjafjarðar og Ögurhrepps.
Stjórn Orkubúsins er skipuð 5 mönnum, sem kjörnir eru á aðalfundi fyrirtækisins.
Orkubússtjóri veitir fyrirtækinu forstöðu, er framkvæmdastjóri þess, og hefur á hendi framkvæmd stefnu stjórnar fyrirtækisins.
Starfsemi Orkubúsins er skipt í 3 svið, orkusvið, rafveitusvið og fjármálasvið, og er framkvæmdastjóri yfir hverju sviði.
Orkubú Vestfjarða, Stakkanes 1, 400 Ísafjörður, sími: 450 3211, bréfsími 456 3204, orkubu@ov.is