Íslenski ferðavefurinn

  • endursetja

Mýrarárvirkjun

Mýrarárvirkjun er minnsta vatnsvél Orkubús Vestfjarða sem nú er í rekstri, en álagið á henni er daglega   um 30-40 kW. Þessari virkjun er að öllu jöfnu sinnt frá Hólmavík, þar sem nú er engin búseta á Snæfjallaströnd. Virkjunin er hlekkur í rafmagnsframleiðslu í Ísafjarðardjúpi og tengd raforkulínum þar.

Undirbúningur að virkjun Mýrarár hófst árið 1961, þegar bændurnir á Mýri og í Unaðsdal tóku að athuga möguleika á virkjun fyrir þessa tvo bæi. Við nánari athugun kom í ljós að grundvöllur var fyrir stofnun rafveitu í Snæfjallahreppi með aðild sjö bæja. Árið 1963 var Rafveita Snæfjallahrepps stofnuð og var Engilbert Ingvarsson á Mýri fyrsti formaður rafveitunefndar. Þá um haustið var rafstöðvarhúsið steypt en sumarið eftir var unnið við stíflugerð og þá voru rörin í þrýstipípuna lögð. Sumarið 1965 var háspennulína lögð og um haustið var lagður þriggja kílómetra sæstrengur út í Æðey. Vélarnar voru settar niður í október og hinn 29. október 1965 var rafmagni hleypt á spennistöðina við Mýri.

Myndasafn

Í grennd

Orkubú Vestfjarða, ferðast og fræðast
Orkubú Vestfjarða HF var stofnað á grundvelli laga frá 2001. Orkubú Vestfjarða HF tók til starfa 1. júlí   2001. Orkubú Vestfjarða var fyrsta rafveita…
Virkjanir á Íslandi, ferðast og fræðast
Listi yfir raforkustöðvar í stafrófsröð Bjarnarflag Blævardalsárvirkjun Blönduvirkjun Búðarhálsstöð Búrfellsvirkjun …

Allar ábendingar eru velkomnar. Reynum að hafa staðreyndir eins réttar og mögulegt er.

Veldu landshluta

nat.is er upplýsinga- og ferðavefur um Ísland sem var stofnaður 1998.  Íslenska útgáfan er is.nat.is.    ( nat@nat.is )