Eldgos númer 2 við Fagradalsfjall
Það er byrjað að gjósa í Meradölum.
Þann 19.mars 2021 eftir langvarandi jarðskjálftahrinur á Reykjanesi hófst eldgos kl 20:45 rétt austan við Fagradalsfjall í Geldingardölum. Gosið fór hægt af stað og stóð allt fram í september með nokkrum hléum. Hér má lesa meira um það gos.
Þann 3.ágúst 2022 hófst síðan kafli tvö í væntanlegri langri röð eldgosa á Reykjanesi næstu ár. Rétt uppúr kl 13:00 opnaðist um 300 metra sprunga rétt við fyrri staðsetningu eldstöðva nálagt Meradölum. Við fyrstu sýn virðist gosið byrja með meiri látum en fyrra gos, hraunspýjurnar ná um 50 metra í loft upp og virðist hraunið renna yfir eldra hraunið.
Hér munum við reyna að fylgjast með framvindu þessa eldgos.
21.ágúst 2022, innan við 3 vikum eftir að gosið hófst, virðist það að lokum komið. Virkni í gígnum hefur dottið niður og virðist nánar engin. Þó er enn hraunrennsli frá gígnum, sem gæti varað í einhvern tíma.
Veðurstofa Íslands gaf út mikilvæg skilaboð fyrir þá sem fóru að gosstöðvunum á síðasta ári. Hér ítrekum við þau skilaboð.
- Gasmengun við gosstöðvarnar getur alltaf farið yfir hættumörk, mengunin leggst undan vindi og því öruggast að horfa til eldgosins með vindinn í bakið.
- Í hægviðri (<5 m/s) getur gas safnast fyrir í lægðum, þá stjórnast vindafar af landslagi og gas getur verið yfir hættumörkum langt upp í hlíðar, allan hringinn í kringum gosstöðvarnar. Í slíkum tilfellum þurfa áhorfendur að færa sig upp á fjöll og hryggi en ekki halda sig í brekkunum fyrir ofan.
- Velja þarf gönguleið eftir vindaspá hverju sinni
- Forðast skal að taka hunda með sér að gosstöðvunum. Hundar eru útsettari fyrir mengun vegna gass þar sem þeir eru nær jörðu. Einnig getur flúor leynst í pollum sem hundar drekka úr.
- Veðurstofan hefur sett upp veðurstöð við gosstöðvarnar sem sýnir athuganir á klukkustunda fresti.
Hér eru ráðleggingar frá Umhverfisstofnun vegna mengunar frá gosstöðvum og hlekkur á loftgaedi.is sem sýnir stöðu á loftgæðum í byggð.
Hér er hægt að lesa um eldgos á Reykjanesi á þessari öld.
Eldgos er hófst 19.mars 2021 við Fagradalsfjall.
Eldgos er hófst 3.ágúst 2022 við Fagradalsfjall.
Eldgos er hófst 10.júlí 2023 við Fagradalsfjall.
Eldgos er hófst 18.desember 2023 við Sundhnúk.
Eldgos er hófst 14.janúar 2024 við Hagafell.