Drangsnes er sjávarútvegsþorp á Selströnd, yst við norðanverðan Steingrímsfjörð, sem tók að myndast á þriðja tug þessarar aldar. Drangsnes fær nafn sitt af háum steindrang niðri við sjó og ber nafnið Kerling.
Þjóðsagan segir að Kerling sé ein þriggja tröllkerlinga sem ætluðu að moka Vestfirði frá meginlandinu.
Einu sinni voru þrjú nátttröll sem ætluðu að sneiða Vestfirði af Íslandi, með því að moka sund þar sem styst er á milli Breiðafjarðar og Húnaflóa. Til að hleypa í sig eldmóði ákváðu þau að keppast um að búa til sem flestar eyjar úr því efni sem til félli við moksturinn. Þau skiptu liði og hófust handa. Að vestanverðu mokuðu karl og kerling inn Gilsfjörð og hömuðust sem mest þau máttu. Breiðafjörðurinn er grunnur og því urðu eyjarnar eins og berjaskyr um hann allan. Að austanverðu fór allt miður. Bæði var tröllkerling sú er mokaði í Kollafirði ein að verki og Húnaflói miklu dýpri en Breiðafjörður svo flest það sem hún kastaði frá sér varð að blindskerjum sem síðan hafa gert Flóann hættulegan skipum.
Tröllin þrjú kepptust við alla liðlanga nóttina og uggðu ekki að sér fyrr en birta tók af degi. Þá tóku vestantröllin til fótanna og stikuðu hvað þau gátu yfir Steinadalsheiði og út Kollafjörð í leit að felustað. En sólin kom upp og náði að skína á þau rétt innan við Kollafjarðarnes þar sem nú heitir Drangavík. Þar urðu þau að steindröngum þeim sem enn standa. Er annar drangurinn allur meiri um sig að ofan og mjókkar niður, og er það karlinn. Hinn er uppmjór og gildnar allur niður svo sýnist móta fyrir niðurhlut og jafnvel lærum. Er það kerlingin.
Skessan sem mokaði að austanverðu, varð líka sein fyrir og gáði ekki að sér fyrr en birta tók. Stökk hún þá í snarhasti norður yfir Steingrímsfjörð og komst að klettabelti einu sem þar gengur í sjó fram og heitir Malarhorn. Varð henni þá litið út yfir Húnaflóa og sá að eftir næturlangt stritið hafði henni ekki tekist að mynda eina einustu eyju, bara fáeina varphólma og smásker. Í reiði sinni tvíhenti hún reku sína og hjó henni í grellsköpum í Hornið um leið og sólin skein á hana. Við það sprakk úr Horninu fram á Steingrímsfjörð eyja sú myndarleg er Grímsey heitir. Er það eina stóreyjan sem skessunni tókst að mynda og segja menn að sama berg sé í eynni og í Malarhorni og sé því augljóst að af því bergi sé hún brotin.
Við norðurenda Grímseyjar er háreistur klettur líkur nauti að lögun og heitir Uxi. Þann uxa átti kerling og stóð hann á Horninu þegar hún sprengdi það fram á fjörðinn og dagaði uxann þar uppi. Kerlingin varð hins vegar að steindrangi þeim semDrangsnes er kennt við og stendur á grasbala í norðanverðu þorpinu, rétt innan við Malarhornið.
Þjónusta við ferðamenn eykst og stendur nú margt til boða og má þar telja silungsveiði í nærliggjandi vötnum og sjóstangaveið en það er mjög stutt er á gjöful fiskimið. Frá Drangsnesi eru boðnar ferðir til Grímseyjar en þar er fjölbreytt fuglalíf og stór lundabyggð.
Vegalengdin frá Reykjavík er um 300 km.