Íslenski ferðavefurinn

  • endursetja

Strandasýsla

Kampur Strandir

Strandasýsla liggur að vestanverðum Húnaflóa, nær frá Geirólfsgnúpi að norðan að Hrútafjarðará og Holtavörðuheiði að sunnan. Sýslan er 2630 km². Strönd sýslunnar er vogskorin, með fjölda fjarða og víkna. Flestir fjarðanna eru stuttir, einkum þó norðan til. Stærstir eru Steingrímsfjörður og Reykjarfjörður. Meðfram ströndinni er aragrúi eyja og skerja og sigling óhrein. Stærst eyja er Grímsey í mynni Steingrímsfjarðar. Fram milli fjarð ganga brött fjöll og múlar en fremur lágt hálendi og heiðar að baki, einkum innan til. Undirlendi er mest upp frá Steingrímsfirði. Veðrátta er hráslagaleg á Norður-Ströndum og hafís oft við land. Bergtegund er blágrýti. Eldstöðvar eru engar. Surtarbrandur og plöntusteingervingar eru víða, einkum við Steingrímsfjörð.

Jarðhiti er allvíða, mestur í Reykjanesi milli Reykjaneshyrnu (316m) og Trékyllisvíkur og í Bjarnarfirði syðri. Norðan til er yfirleitt fremur lítill gróður og með nokkrum fjallablæ en á Inn-Ströndum er gróður meiri, jarðvegur þykkari og betra til ræktunar. Skógur er ekki teljandi en kjarrlendi töluvert. Byggð er strjál í sýslunni og nú komin í eyði norðan Ingólfsfjarðar. Hólmavík er eina kauptúnið en auk þess eru þorp á Drangsnesi og Borðeyri og þorpsvísar á Gjögri og í Djúpuvík, sem nú er þó nær í eyði. Verzlunarstaðir eru, auk Hólmavíkur og Drangsness, á Óspakseyri og í Norðufirði í Árneshreppi.

Hreppar sýslunnar voru: Árneshreppur, Kaldranahreppur, Hrófbergshreppur, Hólmavíkur- hreppur, Kirkjubólshreppur, Fellshreppur, Óspakseyrarhreppur og Bæjarhreppur.
Prestaköll eru: Árnesprestakall (kirkjustaður Árnes), Hólmavíkurprestakall (kirkjustaðir Kaldrananes, Drangsnes (kapella), Staður, Hólmavík og Kollafjarðarnes) og Prestbakkaprestakall (kirljustaðir Prestbakki, Óspakseyri og Staður í Staðarhreppi í V-Húnavatnssýslu). Síðan 1970 er Strandasýsla hluti af Húnavatnsprófastsdæmi.

Hreppar sýslunnar eru nú þrír: Strandabyggð, Kaldrananeshreppur og Árneshreppur. Áður voru þeir átta.

Myndasafn

Í grennd

Djúpavík
Djúpavík er í landi Kjósar, gamals eyðibýlis, sem er í hálfhringlaga dalkvos í Reykjarfirði. Árið 1917 var Guðjón Jónsson, fyrsti íbúinn, skráður t…
Drangsnes
Drangsnes er sjávarútvegsþorp á Selströnd, yst við norðanverðan Steingrímsfjörð, sem tók að myndast á þriðja tug þessarar aldar. Drangsnes fær nafn si…
Hólmavík
Hólmavík er kauptún við Steingrímsfjörð en þar er verzlunar- og þjónustumiðstöð fyrir Hornstrandir og hefur verið frá síðari hluta 19. aldar. Elzta hú…
Holtavörðuheiði
HOLTAVÖRÐUHEIÐI Holtavörðuheiði (407m) liggur á milli Norðurárdals (Tröllakirkja/Snjófjöll) og Hrútafjarðar (heiðar vestan Tvídægru). Varða til minni…
Norðurfjörður
Norðurfjörður er vík norðan Trékyllisvíkur með samnefndu þorpi, þar sem standa mörg hús auð og   yfirgefin. Þarna er rekin lítil verzlun fyrir hina fá…
Staðarskáli N1 þjónustumiðstöð
Staðarskáli N1 þjónustumiðstöð við botn Hrútafjarðar annast þjónustu fyrir ferðamenn. Árið 2008 varð sú breyting á veglínu að gamli skálinn fór úr alf…

Allar ábendingar eru velkomnar. Reynum að hafa staðreyndir eins réttar og mögulegt er.

Veldu landshluta

nat.is er upplýsinga- og ferðavefur um Ísland sem var stofnaður 1998.  Íslenska útgáfan er is.nat.is.    ( nat@nat.is )