Íslenski ferðavefurinn

  • endursetja

Kapella sr. Jóns Steingrímssonar

Kapellan er í Kirkjubæjarklaustursprestakalli í Skaftafellsprófastsdæmi. Hún var vígð 17. júní 1974 í   tilefni 1100 ára Íslandsbyggðar. Ákveðið var að reisa þessa minningarkapellu árið 1966 á 175. ártíð séra Jóns. Hún var reist litlu austan við hinn forna kirkjugrunn, sem margir álíta hinn elzta hérlendis hafi papar átt þátt í honum.

Kapellan tekur 50 manns í sæti. Arkitektar hennar voru Helgi og Vilhjálmur Hjálmarssynir og Valdimar Auðunsson , bóndi í Ásgarði í Landbroti, var kirkjusmiður. Nunnuklaustur af Benediktsreglu var stofnað að Klaustri 1186 og það starfaði allt að siðaskiptum. Rústir klausturbygginganna sjást enn þá, þar sem heitir Kirkjuhólar. Kirkja var á Klaustri til 1859, þegar hún var flutt að Prestbakka. Séra Jón Steingrímsson liggur grafinn í kirkjugarðinum og legsteinn á gröf hans, fimmstrendur blágrýtisstuðull. Hann var sóknarprestur, þegar Skaftáreldar gengu yfir. Eldrit hans er bezta heimild um þessar náttúruhamfarir.

Margir samtímamanna hans töldu, að hann hefði stöðvað hraunrennslið í farvegi Skaftár vestan Systrastapa með kröftugri prédikun í kirkjunni á Klaustri 20. júlí 1783. Hún hefur síðan verið kölluð Eldmessan. Hraunelfan fann sér framrás vestar.

Hvað er betra enn að Ferðast og Fræðast !!!

Myndasafn

Í grennd

Baðstofuhellir – Bæjarhellir
Sandsteinshöfðinn Hellnaskagi er hluti syðsta býlis landsins, Garða. Hann gengur vestur í Dyrhólaós og   uppi á honum eru rústir bæjarins Hella, sem f…
Eldhraun
Heildarflatarmál Skaftáreldahrauna er 565 km² og áætlað rúmmál gosefna, sem komu upp, er 12,3 km³.   Aska frá gosinu barst alla leið til Evrópu. Móðuh…
Kirkjubæjarklaustur
Kirkjubæjarklaustur á Síðu hét áður Kirkjubær og var þar löngum stórbýlt og má segja að svo sé enn. Kauptún hefur myndazt þar og nefnt í daglegu tali …
Kirkjur á hringveginum
Kirkjur á Hringveginum á 6 Dögum Fyrstu árin eftir að hringvegurinn var opnaður (1974) kepptist fólk um að setja hraðamet eða aka aftur á bak allan h…
Kirkjur á Suðurlandi
Listi yfir flestar kirkjur landshlutans Akureyjarkirkja Árbæjarkirkja Ásólfsskálakirkja Ásólfsskáli Bræðratungukirkja …
Lakagígar
Lakagígar urðu til í einhverju mesta hraungosi á jörðunni á sögulegum tímum. Það hófst 8. júní 1783 á  suðvesturhluta gossprungunnar, þar sem hét Varm…
Sögustaðir Suðurland
Ýmsir staðir tengdir sögu landshlutans Álfaskeið Álftaver Almenningar Alviðra Arnarbæli Áshildarmýri Ásólf…

Allar ábendingar eru velkomnar. Reynum að hafa staðreyndir eins réttar og mögulegt er.

Veldu landshluta

nat.is er upplýsinga- og ferðavefur um Ísland sem var stofnaður 1998.  Íslenska útgáfan er is.nat.is.    ( nat@nat.is )