Íslenski ferðavefurinn

  • endursetja

Brjánslækur

flokalundur-brjanslaekur

Fornt höfuðból, kirkjustaður og löngum prestsetur við mynni Vatnsfjarðar á Barðaströnd. Þar var kirkja   helguð heilögum Gregoríusi í katólskum sið. Bryggja er á Brjánslæk og þar er viðkomustaður Flóabátsins. Innanvert við Brjánslæk, niðri við sjó, eru Flókatóttir.

Sér þar fyrir rústum og herma munnmæli, að þar hafi Hrafna-Flóki Vilgerðarson búið. Flókatóttir eru friðlýstar. Í Surtarbrandsgili, ofan Brjánslækjar, eru í millilagi í blágrýtislögum varðveittir einhverjir allra fegurstu plöntusteingervingar, sem þekkjast. Þetta eru einkum blaðför af ýmsum kulvísum trjátegundum, svo sem hlyn, álmi, plantanvið, greni, furu og fleiri tegundum, sem benda til þess, að loftslag hér á landi hafi á vaxtartíma þeirra verið svipað og nú er í Suður-Evrópu.

Eggert Ólafsson og Bjarni Pálsson veittu þessu athygli fyrstir vísindamanna og lýstu staðnum.   Brjánslækur var eitt af höfuðbólum Guðmundar Arasonar hins ríka (›Reykhólar). Mikill styr varð um jörðina eins og fleiri eigur Guðmundar og þar var tengdasonur hans veginn 1481. Briemsættin er upprunnin frá Brjánslæk.

Myndasafn

Í grennd

Breiðafjarðareyjar, Þúsund Eyja Flói.
Breiðafjörður er annar stærsti flói landsins (mynnið 70 km breitt). Innan til, þar sem hann er grynnri, eru óteljandi eyjar (u.þ.b. 2700 með einhverju…
Flatey í Breiðafirði
Flatey er stærst Vestureyja. Alls heyra undir hana tæplega 40 eyjar og hólmar. Í Flatey var verslunarstaður frá miðöldum og löggiltur verslunarstaður …
Flókalundur Bránslækur
Flókalundur er í Vatnsfirði á Barðaströnd. Það er óhætt að fullyrða, að þetta svæði sé meðal hinna allrafegurstu á landinu og landið allt víði vaxið. …
Látrabjarg
Látrabjarg vestasti hluti Íslands Látrabjarg Ferðavísir Patreksfjordur 61 km <-Látrabjarg-> Flókalundur 6 km |Reykhólar 125 km. Barðaströnd …
Sögustaðir Vestfjörðum
Álftafjörður Álftamýri Arnarfjörður Arnarnes Æðey Barmar Bjarkarlundur Borgarland Botn er í Bo…

Allar ábendingar eru velkomnar. Reynum að hafa staðreyndir eins réttar og mögulegt er.

Veldu landshluta

nat.is er upplýsinga- og ferðavefur um Ísland sem var stofnaður 1998.  Íslenska útgáfan er is.nat.is.    ( nat@nat.is )