Akranes fékk kaupstaðarréttindi árið 1942. Bærinn á samnefndu nesi milli Hvalfjarðar og Leirárvoga.
Í Landnámu segir, að Írar hafi numið þar land og nokkur örnefni eru því til staðfestingar.
Akurnesingar halda árhvert Írska daga.
Yzti tangi nessins var að fornu nefndur Skagi og síðar Skipaskagi og eru Akurnesingar gjarnan nefndir Skagamenn.
Útgerð hófst snemma á Akranesi og hefur atvinnulíf á Akranesi fyrst og fremst byggst á sjávarútvegi og fiskvinnslu. Iðnaður er einnig verulegur hluti atvinnulífsins og hefur eina sementsverksmiðja landsins verið starfrækt þar áratugum saman.
Járnblendiverksmiðjan og Norðurál eru á Grundartanga í næsta nágrenni Akraness við Hvalfjörð og starfar fjöldi Akurnesinga hjá þeim fyrirtækjum.
Verzlun og önnur þjónusta er blómleg og þjónusta við ferðamenn eykst. Skagamenn eru sennilega einna þekktastir fyrir knattspyrnuáhuga sinn og hafa knattspyrnumenn og knattspyrnulið þeirra verið meðal hinna sigursælustu á landinu í áratugum saman.
Með tilkomu Hvalfjarðarganga er vegalengdin frá Reykjavík 49 km.