Íslenski ferðavefurinn

  • endursetja

Vötn á Jökuldalsheiði

Jökuldalur

Jökuldalsheiði er víðast í nánd við 500 m yfir sjó og er u.þ.b. 60 km löng á milli Þríhyrningsfjallgarðar, Þjóðfells og Súlendna að vestan og hábrúna Jökuldals með ýmsum hnúkum að austan. Þar eru berar melöldur, fjöldi vatna, flóar og votlendi, vaxin broki, ljósastör og loð- og grávíði. Um og eftir miðja 19. öld var mikil byggð á Jökuldalsheiði, alls sextán bæir.

Þar bjó fólk, sem vildi vera sjálfbjarga en hafði ekki efni á að stofna til búskapar annars staðar. Öskjugosið 1875 lagði byggðina á heiðinni að mestu í eyði og margt fólk, sem flosnaði upp fluttist til Vesturheims. Halldór Laxness mun hafa fengið margar hugmyndir að skáldsögu sinni „Sjálfstætt fólk” af kynnum sínum við síðustu ábúendur þar. Gunnar Gunnarsson skrifaði skáldsöguna „Heiðarharmur”, sem lýsir lífi fólksins á Jökuldalsheiði vel.
Tunguheiði heitir nyrzti hluti heiðarinnar. Þar stóðu nokkur býli, Háreksstaðir hið stærsta. Þessi heiðarhluti er velgróinn og víða mjög mýrlendur og vötn eru þar mörg, einkum í Vatnaflóa. Helztu vötnin þar eru Hólmavatn, Stórhólmavatn, Langhólmavatn og Geldingavatn, öll góð veiðivötn. Tunguá fellur til Vopnafjarðar úr Grunnavatnsdal, austan Fellahlíðar.
Ármótasel.

Vötn á Jökuldalsheiði.:

Þríhyrningsvatn
Matbrunnavötn
Gripdeild
Þverárvatn
Hnúksvatn
Sænautavatn
Ánavatn

Myndasafn

Í grennd

Ferðavísir, ferðast og fræðast
Skipulag ferðar Ein leið við að skipuleggja ferðalag um landið okkar er að velja þann landshluta sem fyrst skal heimsækja. Þaðan er síðan hægt að …
Jökuldalsheiði
Jökuldalsheiði er víðast í nánd við 500 m yfir sjó og er u.þ.b. 60 km löng á milli Þríhyrningsfjallgarðar, Þjóðfells og Súlendna að vestan og hábrúna …
Sænautasel
Sænautasel var byggt á Jökuldalsheiði 1843. Bærinn var í byggð í eina öld. Árið 1861 voru 16 bæir í byggð heiðinni. Þeir eyddust að mestu í Öskjugosi…
Sænautavatn
Sænautavatn er með stærri vötnum á Jökuldalsheiði og er gott veiðivatn. Flatarmál þess er 2,3 km², dýpt 23 m og það er í 525 m hæð yfir sjó. Vatnið l…
Veiði Austurland
Stangveiði á Austurlandi. Hér er listi yfir flestar laxveiðiár og silungsár og -vötn. Laxveiði Austurlandi …
Veiði Norðurland
Stangveiði á Norðurlandi. Hér er listi yfir flestar laxveiðiár og silungsár og -vötn.  Laxveiði Norðurlandi vestra …

Allar ábendingar eru velkomnar. Reynum að hafa staðreyndir eins réttar og mögulegt er.

Veldu landshluta

nat.is er upplýsinga- og ferðavefur um Ísland sem var stofnaður 1998.  Íslenska útgáfan er is.nat.is.    ( nat@nat.is )