Íslenski ferðavefurinn

  • endursetja

Þríhyrningsvatn

Þríhyrningsvatn er allfjarri byggðu bóli, vestan við Þríhyrningsfjallgarð í Jökuldalshreppi. Það er 4,3 km², dýpst 33 m og er í 585 m hæð yfir sjó. Suður frá því rennur Þríhyrningsá, sem síðar heitir Arnardalsá, til Jökulsár á Fjöllum. Akfært er að vatninu eftir ýmsum leiðum og best er að fá leiðbeiningar frá kunnugum. Mikið er af bleikju í vatninu. Hún var stór og feit á meðan netaveiði var stunduð af kappi.

Vegalengdin frá Reykjavík er um 640 km.

Myndasafn

Í grennd

Veiði Norðurland
Stangveiði á Norðurlandi. Hér er listi yfir flestar laxveiðiár og silungsár og -vötn.  Laxveiði Norðurlandi vestra …
Vötn á Jökuldalsheiði
Jökuldalsheiði er víðast í nánd við 500 m yfir sjó og er u.þ.b. 60 km löng á milli Þríhyrningsfjallgarðar, Þjóðfells og Súlendna að vestan og hábrúna …

Allar ábendingar eru velkomnar. Reynum að hafa staðreyndir eins réttar og mögulegt er.

Veldu landshluta

nat.is er upplýsinga- og ferðavefur um Ísland sem var stofnaður 1998.  Íslenska útgáfan er is.nat.is.    ( nat@nat.is )