Vesturhópsvatn er u.þ.b. 7 km langt og mesta breidd 2,3 km. Það er í Þverárhreppi í V.-Húnavatnssýslu í 19 m hæð yfir sjó. Það er 10,3 km² og mesta dýpi 28 m. Veiðisvæðið er við sunnanvert vatnið milli Reyðar- og Faxalækja. Faxalækur rennur út vatninu í Víðidalsá, þannig að svolítill lax er í því. Það er hægt að aka meðfram veiðisvæðinu eftir vegarslóða. Urriði er aðalfiskurinn, en einnig er að finna murtukyn og bleikju. Bleikjan og urriðinn veiðast allt að 1-4 pund, en þorrinn er smærri.
Sjóbirtingur og lax veiðist af og til, enda samgangur við sjó
um Faxalæk og Víðidalsá. Dæmi eru um afarstóra sjóbirtinga, 13-14 punda á seinni árum. Umhverfi vatnsins er fagurt og Borgarvirki gnæfir yfir austurhluta þess. Stangveiðifélag Keflavíkur er með Vesturhópsvatn.
Vegalengdin frá Reykjavík er um 200 km og 24 km frá Hvammstanga.