Svartárvatn er á háheiðinni austan sunnanverðs Bárðardals. Það er 1,9 km² í 395 m hæð yfir sjó og þar er að mestu 2 m djúpt. Í það rennur fjöldi lækja og úr því Svartá til Suðurár. Fjöldi veiðileyfa á dag er ekki takmarkaður. Óski fólk eftir að leigja báta, þarf að panta fyrirfram. Í vatninu er bleikja, sem er yfirleitt fremur smá, en þó góður fiskur. Þörungar hafa oft spillt veiði seinnipartinn í júní. Ísdorg er líka stundað á vatninu.
Vilji veiðimenn komast alla leið umhverfis vatnið verða þeir að ganga 2 km. Vatnið var fisklaust á seinni hluta 19. aldar, þegar framtakssamur bóndi í Svartárkoti flutti lifandi bleikju úr Mývatni og sleppti í vatnið. Hann setti líka frjóvguð bleikjuhrogn í vatnið og lét þau klekjast út. Þetta mun vera fyrsta tilraunin til fiskiræktar, sem áreiðanlegar heimildir eru til um hérlendis. Netveiði er stunduð í vatninu til að halda stofninum í jafnvægi.
Myvatn 80 km | Aldeyjarfoss 15 km <-Svartárvatn-> Kidagil 20 km