Selvík er bezti lendingarstaður Skagafjarðarmegin á Skaga. Rústir verbúða eru greinilegar á Selnesi við víkina norðanverða. Þýzkaleiði gefur til kynna komur þýzkra kaupmanna á öldum áður og um aldamótin 1900 stóðu kaupmenn á Sauðárkróki fyrir talsverðri verzlun og fiskverkun þar. Um tíma voru uppi áætlanir um að gera Selvík að aðalútflutningsstað fyrir lifandi búfénað á Norðurlandi. Samnefndur bær er á Selnesi.
Kolbeinn ungi Arnórsson fór þaðan með 400 manna flota sinn á Jónsmessunótt 1244 til Vestfjarða, þar sem hann ætlaði að finna Þórð kakala fyrir. Samtímis var Þórður á leið yfir Húnaflóa úr gagnstæðri átt og hittust þeir á leiðinni, þar sem mikil sjóorrusta hófst. Kolbeinn hafði betur.