Þingvellir 49 km, Selfoss 57 km, <Kópavogur> Borgarnes 74 km, Keflavík 54 km, Grindavík 52 km.
Kópavogur er bær í örum vexti og byggðist upp frá fyrri hluta síðari heimsstyrjaldarinnar og er nú annar fjölmennasti kaupstaður á landsins (1955). Bæjaryfirvöld hafa lagt mikla áherzlu fjölgun íbúa og greitt mjög fyrir, að fyrirtæki í öllum greinum fái sem bezta aðstöðu í bænum. Má t.d. nefna mikinn verslunarkjarna við Smáratorg, stærstu verzlunarmiðstöð landsins, Smáralind, og að mörg iðnfyrirtæki koma sér fyrir þar. Verzlunarþjónusta var góð fyrir og fjölmörg fyrirtæki í léttum iðnaði hafa haft aðsetur sitt í bænum um árabil og er fátítt að slík starfsemi sé flutt þaðan.
Margar göngu og hlaupaleiðir eru nú í Kópavogi, sem og hjóla og reiðstígar og má sjá góð kort af þeim á vef Kópavogsbæjar.
Allt frá aldamótum hefur Kópavogsbær sett upp fjölda fróðleiksskilta sem fjalla um dýralíf, jarðfræði, þjóðsögur og sagnfræði sem tengist bænum. Hér má sjá nokkur þeirra í myndasafninu.
Eins og sjá hér að neðan, tengdar færslur er nat.is að reyna að halda jafnframt um gamlar og nýjar heimildir: