Íslenski ferðavefurinn

  • endursetja

Héðinsfjörður

Hedinsfjordur

Héðinsfjörður er 5-6 km langur og rúmlega 1 km á breidd. Vestan hans er Hestfjall (536m) og að austan   Hvanndalabyrða (624m). Ekkert undirlendi er meðfram ströndinni og upp bakka að fara til að komast inn í grösugan dalinn. Þar voru nokkrir bæir fram undir miðja 20. öldina. Héðinsfjarðarvatn, allgott veiðivatn, er í utanverðum dalnum. Tveir fjallvegir lágu til Siglufjarðar um Hestskarð og Hólsskarð, sem eru verða æ fjölfarnari. Gömul alfaraleið liggur um Fossabrekkur til Ólafsfjarðar.

Hinn 29. maí 1947 flaug DC-3 flugvél Flugfélags Íslands með 25 manns beint á Hestfjall og allir fórust. Bók var gefin út um þetta mannskæðasta flugslys hérlendis árið 2009. Snjóflóð voru mannskæð í Héðinsfirði fyrrum. Veturinn 1724-25 féll eitt slíkt á bæinn Vatnsenda og tók 6 mannslíf. Tveir drengir, sem voru ekki inni í bænum, þegar flóðið féll, grófust undir því en gátu losað sig á fjórða degi. Annar þeirra brauzt yfir til Siglufjarðar og sótti hjálp. Ein stúlka fannst á lífi. Í Héðinsfirði er skýli Slysavarnarfélags Íslands.

Sveitarfélögin Ólafsfjörður og Siglufjörður voru sameinuð árið 2006 eftir að vænta mátti samgöngubóta milli kauptúnanna. Það var þó ekki fyrr en 2. október 2010, að tvenn göng voru opnuð milli þeirra. Göngin frá Ólafsfirði í Héðinsfjörð eru 6,9 km löng og þaðan til Siglufjarðar eru hin göngin 3,7 km löng. Áætlanir um notkun ganganna voru fremur varfærnar, svo það kom flestum þægilega á óvart, að umferð um þau var verulega meiri en væntingar.

Myndasafn

Í grennd

Dalvík
Dalvík er kaupstaður í mynni Svarfaðardals. Aðalatvinnuvegirnir eru útgerð, fiskvinnsla, iðnaður og verslun, en þjónusta við ferðamenn eykst sífellt. …
Héðinsfjarðarvatn
Héðinsfjarðarvatn er í 5-6 km löngum og 1 km breiðum og grösugum dal, sem var í byggð fram til 1857.  er 1,7 km² í 3 m hæð yfir sjó. Vestan dalsins e…
Ólafsfjörður
Ólafsfjörður er kaupstaður við samnefndan fjörð, sem gengur inn úr Eyjafirði. Þar er góð hafnaraðstaða og er fiskvinnsla og útgerð aðalatvinnuvegirnir…
Siglufjörður
Siglufjörður var fyrrum kallaður síldarhöfuðstaður heimsbyggðarinnar, og það ekki að ástæðulausu.  Núna er þar mikil útgerð og fiskvinnsla og ein stær…
Siglunes
Siglunes er nyrzta nesið milli Siglufjarðar og Héðinsfjarðar. Nesnúpur (581m) rís hvass upp af nokkru   láglendi en inn með firðinum eru hinar snarbrö…

Allar ábendingar eru velkomnar. Reynum að hafa staðreyndir eins réttar og mögulegt er.

Veldu landshluta

nat.is er upplýsinga- og ferðavefur um Ísland sem var stofnaður 1998.  Íslenska útgáfan er is.nat.is.    ( nat@nat.is )