Íslenski ferðavefurinn

  • endursetja

Haugatjarnir Skriðdal

Hnausatjarnir2

Haugatjarnir í Skriðdal.

Leiðarlýsing og fjarlægð frá Reykjavík og næsta bæjarfélagi.
Hausatjarnir Frá Reykjavík eru um 650 km. og um 35 km. til Egilsstaða. Tjarnirnar eru við bæinn Hauga sem stendur við þjóðveg eitt.

Upplýsingar um vatnasvæðið:
Um er að ræða tvær tjarnir, sem eru mjög hentugar fyrir fjölskyldur. Þær eru ekki stórar en mjög aðgengilegar. Þar er mikið af fiski og því sérstaklega skemmtilegar fyrir ungu kynslóðina. Mikið og gott berjaland er í nágrenninu.

Veiðisvæðið:
Veiði er heimil í báðum tjörnunum.

Gisting:
Handhafar Veiðikortsins hafa heimild til að tjalda endurgjaldslaust við vatnið, á eigin ábyrgð. Taka skal fram, að hvorki er þar að finna skipulagt tjaldstæði né hreinlætisaðstöðu.

Veiði:
Einungis urriði veiðist í tjörnunum.

Daglegur veiðitími:
Leyfilegt er að veiða allan sólarhringinn.

Tímabil:
Veiði er heimil frá 1. maí til 30. september.

Agn:
Allt löglegt agn: Fluga, maðkur og spónn.

Besti veiðitíminn:
Jöfn veiði allt tímabilið.

Reglur:
Vinsamlegast skiljið ekki eftir rusl og stranglega bannað er að aka utan vegar. Handhafar Veiðikortins þurfa að skrá kortanúmer og kennitölu hjá umsjónarmanni, Hugrúnu Sveinsdóttur á Haugum. Börn yngri en 14 ára veiða frítt.

Veiðivörður / umsjónarmaður:
Hugrún Sveinsdóttir, Haugum, s: 892-7813.

Myndasafn

Í grennd

Egilsstaðir og Fellabær
Egilsstaðir og Fellabær eru á Fljótsdalshéraði, en þar er eitthvert veðursælasta svæði landsins, minnir helzt á meginlandsloftslag. Egilsstaðahrepp…
Hallormsstaður
Stærsti skógur Íslands Hallormsstaðaskógur er stærsti skógur Íslands, 27 km frá Egilsstöðum, austan Lagarfljóts og 5 km frá Jökulsár í Fljótsdal. Ár…
Lagarfljót og Lagarfljótsvirkjun
Lagarfljót er u.þ.b. 140 km langt frá efstu upptökum í Norðurdal, en þar heitir áin Jökulsá í Fljótsdal. Það er annað mesta vatnsfall Austurlands á ef…
Skriðuklaustur
Þetta fornfræga stórbýli er næsti bær við kirkjustaðinn og prestsetrið Valþjófsstað. Bærinn hét upprunalega Skriða, en það breyttist, þegar Stefán Jón…
Veiði Austurland
Stangveiði á Austurlandi. Hér er listi yfir flestar laxveiðiár og silungsár og -vötn. Laxveiði Austurlandi …
Veiðikortið
Veiðikortið 2024 veitir nær ótakmarkaðan aðgang að fjölda vatnasvæða um allt land. Kortið kostar aðeins 9.900 krónur og fylgir glæsileg handbók hverju…
Veiðikortið
Kaupa Veiðikortið

Allar ábendingar eru velkomnar. Reynum að hafa staðreyndir eins réttar og mögulegt er.

Veldu landshluta

nat.is er upplýsinga- og ferðavefur um Ísland sem var stofnaður 1998.  Íslenska útgáfan er is.nat.is.    ( nat@nat.is )