Íslenski ferðavefurinn

  • endursetja

Franzhellir Eyvindarhola

Franzhellir og Eyvindarhola

Franzhellir er um 10 -20 mínútna gang austan við Reykjavatn, sem er talinn dvalarstaður síðasta  d10629180f2de108031ec68bb0108cee útilegumannsins á Íslandi, Jóni Franz Jónssyni og hellirinn nefndur eftir honum. Jón Franz var gripinn í hellinum í nóvember 1814, en hann hafði flúið yfirvaldið eftir harðan dóm sem hann hlaut á Snæfellsnesi fyrir þjófnað. Hann slapp úr prísundinni en ólíkt Fjalla-Eyvind, þá náðist hann og var sendur í 20 ára vist á Brimarhóli
( Brimarhólmur eða Brimarahólmur (danska): Bremerholm var upphaflega eyja við Kaupmannahöfn, en síðan tengd landi á 16. öld ).

Franzhellir/Eyvindarhola, einn af síðustu dvalarstöðum útilegufólksins Eyvindar og Höllu, liggur á sléttri hraunbreiðu sunnan Reykjavatns. Inngangur í hellinn er lítið áberandi og þröngur, þannig að einn maður getur með naumindum troðið sér þar niður.  Erfitt er að finna innganginn og aðeins á færi kunnugra um staðhætti þar.

Eyvindur Jónsson fæddist árið 1714 í Hlíð í Hrunamannahreppi. Hann var elstur tíu systkina og þótti greindur, ráðkænn, góður sundmaður og afar fær í handahlaupi sem kom honum vel á flótta sínum undan yfirvaldinu. Hann var vel læs og jafnframt mjög hagur á hönd. Til eru haganlega gerðar tágakörfur (í einkaeigu og á söfnum) sem eru eftir hann þar sem hann skildi oft körfur eftir hjá þeim sem höfðu lagt honum lið.

Halla Jónsdóttir fæddist í Súgandafirði um 1720 og var ekkja í Miðvík í Aðalvík þegar talið er að Eyvindur hafi sest að hjá henni. Halla þótti ekki fríð og frekar sviplítil og var ólæs.

Dómskjöl sýna að þau hafa átt börn í útlegðinni, sem dóu ung en Eyvindur átti einn son áður en hann lagðist út.
Leiði Fjalla-Eyvindar er merkt á Hrafnsfjarðareyri. sem er í botni Jökulfjarða.

Myndasafn

Í grennd

Arnarvatnsheiði og Tvídægra
Arnarvatnsheiði og Tvídægra eru heiðarflæmi, sem þekja norðvestuhluta meginhálendisins. Þar eru sögð óteljandi líkt og hólarnir í Vatnsdal og eyjarna…
Eyvindarkofaver
Eyvindarkofaver er grösugt mýrlendi austan Þjórsár, umkringt melöldum og þakið fjölda tjarna. Helzti gróður er stör, brok, burnirót, smjörgras, loð- o…
Jökulfirðir
Austur úr Ísafjarðardjúpi utarlega, milli Bjarnarnúps og Grænuhlíðar, gengur flói eða breiður fjörður, nokkrir firðir kvíslast frá til norðurs, austu…
Reykjavatn
Reykjavatn er í jaðri Hallmundarhrauns suðaustan Arnarvatnshæða og u.þ.b. 10 km norðan Eiríksjökuls.   Það tilheyrir ekki beinlínis Arnarvatnsheiði en…
Sögustaðir Vesturlandi
Ýmsir staðir tengdir sögu landshlutans Borgarfjörður Akrafjall Akrakirkja Akranes Akraneskirkja …

Allar ábendingar eru velkomnar. Reynum að hafa staðreyndir eins réttar og mögulegt er.

Veldu landshluta

nat.is er upplýsinga- og ferðavefur um Ísland sem var stofnaður 1998.  Íslenska útgáfan er is.nat.is.    ( nat@nat.is )