Jökulháls er austan undir Snæfellsjökli. Þar liggur leið milli Arnarstapa og Ólafsvíkur. Hún liggur fyrst meðfram Stapafelli, sé lagt af stað að sunnanverðu, og með jökulrótum í 700-800 m hæð yfir sjó. Leiðin er ekki alltaf fær, því að mismunandi er, hve snemma snjóa leysir. Þessi leið er tilvalin fyrir göngufólk, enda ekki nema 4-5 klst. ganga milli staða. Þeir, sem leggja leið sína á jökulinn, halda gjarnan upp á Jökulháls og þarna hefur verið rekin starfsemi (Snjófell) með snjóbíla og snjósleðaferðum.
Vikurvinnsla hófst á Jökulhálsi árið 1937. Byggðir voru stokkar ofan af hálsinum niður á Arnarstapa til að fleyta vikrinum með vatni. Niðri á Stapa var vikurinn kurlaður og settur í skip til Reykjavíkur eða beint til útlanda.
Heilsárstímabil 1932-33 var helgað alþjóðaveðurathugunum. Þá voru gerðar veðurathuganir á jöklinum og byggt hús uppi á Jökulhálsi í þeim tilgangi. Ferðafélag Íslands eignaðis þetta hús en það fauk 1936. Þar var endurreist tvisvar en jarðhiti undir því olli miklum fúa, þannig að lítið er eftir.