Torfdalsvatn er í Skagahreppi í Austur-Húnavatnssýslu. Það er 0,6 km², nokkuð djúpt og í 52 m yfir sjó. rennur úr því í Rekavatn. Vegasamband er gott, því að þjóðvegurinn liggur með því vestanverðu. Mikið er af góðri bleikju í vatninu og urriðinn er vænn. Lengi var vatnið ekki nýtt vegna munnmæla um baneitraða öfugugga. Eftir að netaveiðar höfðu verið stundaðar um tíma fór fiskurinn að stækka og braggast.
Vegalengdin frá Reykjavík er u.þ.b. 290 km og 20 frá Skagaströnd.