Íslenski ferðavefurinn

  • endursetja

Þverfell

Þverfell er efsti bær í Lundareykjadal norðan Grímsár ófjarri ármótum hennar og Tunguár og  eyðibýlisins Englands sunnan hennar. Vegurinn upp á Uxahryggi að Reyðarvatni og Brunnum liggur sunnan bæjar upp Lundareykjadalinn.

Njálssaga segir frá Glúmi, eiginmanni Hallgerðar langbrókar, þar sem hann var að leita sauða sunnan Þverfells, þegar Þjóstólfur, fóstri Hallgerðar, kom þar að og drap hann. Glúmsgil er í fellinu austanverðu. Kristmann Guðmundsson (1901-83), rithöfundur og skáld, fæddist að Þverfelli. Hann varð aldrei spámaður í eigin föðurlandi og var mjög umdeildur, jafnvel ofsóttur, eftir að hann fluttist heim frá Noregi, þar sem hann bjó um áratugi og ávann sér vinsældir meðal annarra Norðurlandabúa. Hann gaf út skáldsögur, ljóð, endurminningar, Heimsbókmenntasögu o.fl.

Myndasafn

Í grennd

Borgarnes
Borgarnes Borgarnes og nokkur sveitarfélög í Mýrarsýslu sameinuðust fyrir nokkru undir nafninu Borgarbyggð. Borgarnes er í landi Borgar á Mýrum og hé…
Reyðarvatn
Reyðarvatn er í Borgarfjarðarsýslu, upp frá botni Lundarreykjadals. Á fyrri jarðsögutímum hefur  dalurinn verið lengri en nú er. Við gos undir jökli h…
Reykholt í Reykholtsdal
Sögustaðurinn Reykholt Reykholt í Reykholtsdal er einhver merkasti sögustaður landsins, ekki sízt vegna búsetu Snorra Sturlusonar. Margir telja han m…
Sögustaðir Vesturlandi
Ýmsir staðir tengdir sögu landshlutans Borgarfjörður Snæfellsnes Dalir Landshlutar Ferðavísir…

Allar ábendingar eru velkomnar. Reynum að hafa staðreyndir eins réttar og mögulegt er.

Veldu landshluta

nat.is er upplýsinga- og ferðavefur um Ísland sem var stofnaður 1998.  Íslenska útgáfan er is.nat.is.    ( nat@nat.is )