Sporðöldulón er nýtt uppistöðulón Búðarhálsvirkjunnar. Það verður til af rensli Túnár og Köldukvíslar.
hefur alla möguleika að verða gjöfult veiðivatn á komandi árum þar sem vatnshæð verður stöðug og lónið nokkuð tært norðanvert þar sem Kaldakvísl fellur í það.
Aðgengi að lóninu er gott, malbikaður vegur alla leið frá Reykjavík og malar vegaslóð meðfram lóninu.
Ferðalög á miðhálendinu voru tíð á söguöld en síðan fór að draga úr þeim, þegar hjátrú magnaðist, og lengi lágu ferðalög niðri, eða allt fram á 18.öld. Nú á dögum er ferðast um hálendið allt árið. Vegakerfið er víða orðið fært öllum tegundum farartækja á sumrin, einkum fyrir tilstuðlan Landsvirkjunar.
Fish Parner:
Veiðikort
Fjölskylduvæn veiði á hálendinu
Sporðöldulón myndaðist í nóvember 2013 þegar stífla var reist neðst í farvegi Köldukvíslar, ofan við ármót Tungnaár. Vatn Köldukvíslar og affallsvatn Hrauneyjastöðvar myndar lónið ásamt nokkrum lækjum. Stærð Sporðöldulóns er áætluð um 7 ferkílómetrar. Það er mikill fiskur í lóninu bæði, urriði og bleikja, sem kemur upphaflega úr Tungnaá og Köldukvísl. Lónið er nokkuð tært og hentar vel til fluguveiða. Veiði í lóninu hefur verið stunduð síðastliðin ár og hefur gengið vel. Vænn fiskur hefur veiðst eða allt að sex pund ásamt mikið af smábleikju Leyfilegt agn í vatninu er fluga, maðkur og spúnn. Daglegur veiðitími er frjáls en þó ekki lengur en 12 klukkustundir á dag. Stranglega bannað er að veiða í vatnaskilum Köldukvíslar og einnig af stíflunni sjáfri
Veiðifélagar Fish Partner fá 3% endurgreiðslu í formi veiðikróna við kaup á leyfi í Sporðöldulóni í vefsölu
Myndasafn
Veiðileyfi
Öll verð miðast við eina stöng
Fjarlægð frá Reykjavík:
150km
Veiðitímabil:
Meðan fært er að veiðisvæðinu
Meðalstærð:
2-5 pund
Fjöldi stanga:
10
Leyfilegt agn:
Fluga, Spún, Beita
Veiðibúnaður:
Einhenda #4-6, Kastangir
Bestu flugurnar:
Straumflugur og púpur
Húsnæði:
Ýmsir möguleikar
Aðgengi:
4×4