Íslenski ferðavefurinn

  • endursetja

Skrúður

Skrúður rís bratt úr hafi austan Fáskrúðsfjarðar, sem hét fyrrum Skrúðsfjörður. Tvær grasi vaxnar eyjar,   Andey og Æðarsker, eru nokkru innar og Seley með fimm hólmum er undan Reyðarfirði. Eina eyjan, sem hefur verið byggð fyrir Austurlandi, er Papey undan Hamarsfirði, stærsta eyja Austfjarða. Skrúðshellir er hár til lofts og víður til veggja. Vermenn höfðust þar gjarnan við, þegar útræði var úr Skrúð. Eggja- og fuglatekja var mikil í eyjunni fyrrum.

Fuglinn gerir eyjuna græna með áburði sumar og vetur og ber hún því nafn með rentu. Eyjan liggur undir Vattarnes, sem er yzt við Reyðarfjörð, en Andey og Æðarsker undir Kolfreyjustað í Fáskrúðsfirði. Ýmis örnefni í Skrúðnum má finna í Eimreiðinni 1950.

Gömul saga segir frá Skrúðsbóndanum og sagnir eru uppi um, að Guðmundur biskup hinn góði hafi átt að blessa eyjuna til að koma honum brott. Það varð ekki úr því og Skrúðsbóndinn hélt áfram að stela sauðum, sem bændur létu ganga í eyjunni. Sagnir eru líka uppi um hjálpsemi bóndans í Skrúð, þegar hann bjargaði mönnum úr sjávarháska.

Eyjan var friðlýst 1995.

Myndasafn

Í grennd

Fáskrúðsfjörður
Við botn Fáskrúðsfjarðar er kauptúnið Búðir. Þar er kaupfélag, sem rekur verzlun, fiskvinnslu og útgerð. Búðir voru helsta bækistöð franskrar skútuútg…
Reyðarfjörður
Búðareyri er kauptún innst við norðanverðan Reyðarfjörð og nefnist nú einfaldlega Reyðarfjörður. Frá náttúrunnar hendi eru mjög góð hafnarskilyrði við…
Sögustaðir Austurlandi
Ýmsir staðir tengdir sögu landsins Aðalból Álfaborg Álfatrú Álftafjörður Ás í Fellum Ás í Fellum Áskirkja …
Stærstu Eyjar
1. Heimaey  13,4 2. Hrísey á Eyjafirði  8,0 3. Hjörsey í Faxaflóa  5,5 4. Grímsey  5,3 5. Flatey á Skjálfanda  2,8 6. Málmey  2,4 7. Papey  2,0 …

Allar ábendingar eru velkomnar. Reynum að hafa staðreyndir eins réttar og mögulegt er.

Veldu landshluta

nat.is er upplýsinga- og ferðavefur um Ísland sem var stofnaður 1998.  Íslenska útgáfan er is.nat.is.    ( nat@nat.is )