Íslenski ferðavefurinn

  • endursetja

Safnarkirkjan á Akureyri

Gamla Svalbarðsstrandarkirkjan er í Akureyrarprestakalli í Eyjafjarðarprófastsdæmi. Hún stendur á sama grunni og fyrsta kirkja Akureyrar fyrir neðan Byggðasafnið við hliðina á Nonnahúsi.

Samkvæmt Svalbarðsstrandarbók frá 1964 stóð þar kirkja þar frá miðri 12. öld. Árið 1846 var 94 ára gömul kirkja rifin og timburkirkja byggð í hennar stað.

Nýja kirkjan var fyrsta timburhúsið á þessum slóðum og er enn þá í notkun. Hún var flutt til Akureyrar og komið fyrir á stæði fyrstu kirkju bæjarins milli Nonnasafns og Byggðasafnsins við Aðalstræti.

Þar þjónar hún sem kirkjusafn og er hluti Byggðasafnsins.

Myndasafn

Í grennd

Akureyrarkirkja
Akureyrarkirkja var vígð 1940. Húsameistari ríkisins, Guðjón Samúelsson, teiknaði hana. Yfir miðju altarinu er steindur gluggi úr enskri kirkju í Cove…
Akureyri
Akureyri er stærsti kaupstaður landsins utan höfuðborgarsvæðisins. Þessi fallegi bær kúrir í fallegum  ramma innst í Eyjafirði vestanverðum og einhver…
Kirkjur á hringveginum
Kirkjur á Hringveginum á 6 Dögum Fyrstu árin eftir að hringvegurinn var opnaður (1974) kepptist fólk um að setja hraðamet eða aka aftur á bak allan h…

Allar ábendingar eru velkomnar. Reynum að hafa staðreyndir eins réttar og mögulegt er.

Veldu landshluta

nat.is er upplýsinga- og ferðavefur um Ísland sem var stofnaður 1998.  Íslenska útgáfan er is.nat.is.    ( nat@nat.is )