Íslenski ferðavefurinn

  • endursetja

Jökulheimar

Jökulheimar eru í Tungnárbotnum nærri jaðri Tungnárjökuls. Þangað er ekið eftir Veiðivatnaleið að og austan Ljósufjalla þar til komið er að skálum Jöklarannsóknarfélagsins. Minni skálinn var reistur árið 1955 og hinn stærri 1966. Þeir voru og eru m.a. miðstöð rannsóknarleiðangra upp á Vatnajökul og þar er fólki heimil gisting, ef það hefur samband við Jöklarannsóknarfélagið fyrirfram. Þarna var veðurathugunarstöð í nokkur ár með fastri búsetu veðurathugunarfólks. Umhverfi Jökulheima er auðnarlegt og gróðursnautt. Fært er yfir Tungná á stórum fjórhjóladrifnum bílum til eða frá Tungnárfjöllum (Breiðbak) að Langasjó og þaðan niður á Landmannaleið. Enginn, sem er óvanur vatnaakstri eða er einbíla, ætti að reyna við slíkt ævintýri.

U.þ.b. 7 km vestan og norðvestan Jökulheima eru Gjáfjöll (Helgrindur; 700-900 m.y.s.). Þar klofna þau í miðju um Heljargjá og skammt vestan skarðsins milli þeirra og Bláfjálla er drangurinn Dór, steinrunninn jötunn með byrði á baki, sem stefnir að jökli.

Kerlingar eru tvö fell (1207 og 1339m) í vesturrönd Vatnajökuls, ekki langt norðan Tungnaárbotna. Útsýnið af hærra fellinu er geysigóð á góðum degi.

Skálar Jökulheimar

 

Myndasafn

Í grennd

Hálendið, ferðast og fræðast
Þegar talað er um (Hálendið) miðhálendið, er yfirleitt miðað við landsvæði ofan 400 m hæðar yfir sjó. Þetta svæði nær yfir u.þ.b. 76% af flatarmáli la…
Sögustaðir Hálendinu
Ýmsir staðir tengdir sögu landshlutans Sögustaðir. Nýjar og gamlar Hálendisleiðir, útilegumenn, þjófar og draugar eru meðal þess sem finna má á sö…
Vatnajökull
Vatnajökull er stærsti jökull Evrópu Vatnajökull (2110m) er stærsti jökull Evrópu, 8100 km². Heildarísmagn jökulsins er talið vera í nánd við 4000 km…
Veiðivötn
Veiðivatnasvæðið: Það er ungt að árum í núverandi mynd, því að það varð til í stórkostlegum náttúruhamförum árið 1477, gaus á Veiðivatnasprungunni, …

Allar ábendingar eru velkomnar. Reynum að hafa staðreyndir eins réttar og mögulegt er.

Veldu landshluta

nat.is er upplýsinga- og ferðavefur um Ísland sem var stofnaður 1998.  Íslenska útgáfan er is.nat.is.    ( nat@nat.is )