Íslenski ferðavefurinn

  • endursetja

Hítardalur, Hítardalsklaustur

Hítardalur er fornt höfuðból, sem kemur víða við sögu í gömlum heimildum. Til forna hét bærinn og   fellið fyrir ofan hann Húsafell, en nú heitir það Bæjarfell. Eitthver mannskæðasti eldsvoði Islandssögunnar varð í Hítardal, þegar Magnús Einarsson, biskup í Skálholti, brann þar inni 30. september 1148 ásamt 70-80 manns, sem voru þar í veizlu.

Hítardalsklaustur var stofnað árið 1166, líklega að hluta til minningar um brunann mikla í Hítardal árið 1148. Þorleifur Þorláksson, bóndi og höfðingi í Hítardal, gaf jörðina til stofnunar klaustursins. Engar heimildir hafa fundizt um klausturlíf þar, þannig að óvíst er um tilvist þess. Engu að síður eru tveir ábótar tilgreindir þar, Hreinn Styrmisson, sem var vígður 1166 (†1177), og Hafliði (†1201 skv. annálum. Líklega var þarna Benediktsklaustur.

Tröllkonan Hít bjó í Hundahelli í Bæjarfellinu og þangað bauð hún Bárði Snæfellsás og fleirum af sama kyni í samkvæmi. Steindrangarnir neðan bæjar í Hítardal eru sagðir vera Hít og Bárður, sem þar dagaði uppi en önnur saga segir, að Bárður hafi gengið í Snæfellsjökul, þannig að þarna sé um annan karl að ræða.

Um dalinn rennur Hítará, sem er ágætis laxveiðiá, sem kemur úr Hítarvatni. Talsverð hraun þekja dalbotninn og uppblástur er verulegur. Nokkur eyðibýli eru í dalnum.

Gönguleiðin að Langavatni og þaðan að Hreðavatni er áhugaverð og á þessari leið eru fleiri góð veiðivötn á heiðunum.

Myndasafn

Í grennd

Borgarnes
Borgarnes Borgarnes og nokkur sveitarfélög í Mýrarsýslu sameinuðust fyrir nokkru undir nafninu Borgarbyggð. Borgarnes er í landi Borgar á Mýrum og hé…
Hítarvatn
Hítarvatn er 7,6 km², mest 24 m djúpt og er í 147 m hæð yfir sjó. Afrennsli þess er Hítará. Það er ráðlegt   að panta veiðileyfi með fyrirvara, þótt l…
Klaustur á Íslandi
Heimildir um einsetulifnað á Íslandi fyrir kristnitökuna árið 1000 og áður en klaustur voru stofnuð, eru til. Meðal þeirra er frásögn af Ásólfi Konáls…
Sögustaðir Vesturlandi
Ýmsir staðir tengdir sögu landshlutans Borgarfjörður Snæfellsnes Dalir Landshlutar Ferðavísir…

Allar ábendingar eru velkomnar. Reynum að hafa staðreyndir eins réttar og mögulegt er.

Veldu landshluta

nat.is er upplýsinga- og ferðavefur um Ísland sem var stofnaður 1998.  Íslenska útgáfan er is.nat.is.    ( nat@nat.is )