Íslenski ferðavefurinn

  • endursetja

Hítarvatn

Hítarvatn er 7,6 km², mest 24 m djúpt og er í 147 m hæð yfir sjó. Afrennsli þess er Hítará. Það er ráðlegt   að panta veiðileyfi með fyrirvara, þótt leyfðar séu 25 stengur í vatninu á dag. Í vatninu er bleikja og urriði. Snemmsumars er veiði mest í vatninu vestanverðu og síðar er gott að veiða við læki og undir hraunkantinum. Fiskur er yfirleitt 1-2 pund. Fluga, maðkur og spónn ganga vel.

Hítarvatn er við veg 593, 46 km vestan Borgarness. Það er jeppafært alla leið að vatninu frá bænum Hítardal. Þar er og leitarmannaskáli með hreinlætisaðstöðu, sem hægt er að gista í.

Hít hét tröllkerling, sem bjó í dalnum og frá henni eru öll nöfnin komin.
Tröllkonan Hít bjó í Hundahelli í Bæjarfellinu og þangað bauð hún Bárði Snæfellsás og fleirum af sama kyni í samkvæmi. Steindrangarnir neðan bæjar í Hítardal eru sagðir vera Hít og Bárður, sem þar dagaði uppi en önnur saga segir, að Bárður hafi gengið í Snæfellsjökul, þannig að þarna sé um annan karl að ræða.

Vegalengdin frá Reykjavík er um 120 km.

Myndasafn

Í grennd

Borgarnes
Borgarnes Borgarnes og nokkur sveitarfélög í Mýrarsýslu sameinuðust fyrir nokkru undir nafninu Borgarbyggð. Borgarnes er í landi Borgar á Mýrum og hé…
Hítardalur, Hítardalsklaustur
Hítardalur er fornt höfuðból, sem kemur víða við sögu í gömlum heimildum. Til forna hét bærinn og   fellið fyrir ofan hann Húsafell, en nú heitir það …
Veiði Vesturland
Stangveiði á Vesturlandi. Hér er listi yfir flestar laxveiðiár og silungsár og -vötn. Laxveiði Vesturlandi …

Allar ábendingar eru velkomnar. Reynum að hafa staðreyndir eins réttar og mögulegt er.

Veldu landshluta

nat.is er upplýsinga- og ferðavefur um Ísland sem var stofnaður 1998.  Íslenska útgáfan er is.nat.is.    ( nat@nat.is )