Íslenski ferðavefurinn

  • endursetja

Heydalur

Súðavík 113 km <Heydalur-Reykjanes> Hólmavík 89 km.

Heydalur við Mjóafjörð var vinsæll áningarstaður þeirra, sem eiga leið um Djúpið. Umhverfið skartar mikilli náttúrufegurð og er fjölsótt af ferðamönnum.

Galtahryggslaug. Leiðin að lauginni liggur fram hjá Djúpmannabúð, um 1,9 km eftir þokkalegri slóð. Hún er niðurgrafin og stífluð með jarðefni. Lítill búningsklefi er við laugina. Líklega er hann aðeins til einkanota. Stærð laugar um 3 x 2 x 0,5 m. Vatnshiti er 41°C og sýrustig (pH) 10,1 . Rennsli er 0,2-0,3 l/sek.

Í Heydal og á Reykjanesi er rekin hótelþjónusta allt árið. Árlega var haldin fjölskylduhátíð í Djúpmannabúð.

Reykjanes er mjór skagi milli Reykjafjarðar og Ísafjarðar. Þar er rekin ferðaþjónusta og hótel allt árið. Reykjanes komst í alfaraleið haustið 2009, þegar Mjóafjárðarbrúin var opnuð. Reglulegar bátsferðir eru frá Ísafirði. Tiltölulega stutt er í góðar laxveiðiár og veiðivötn og má t.d. nefna Laugadalsá og Langadalsá. Veðursæld er mikil í Mjóafirði, þar sem náttúrunnendur geta valið úr fjölmörgum gönguleiðum, farið í fjöruskoðun og baðað sig í heitum laugum, sem eru víða um Djúpið. Héraðsskólinn við Reykjanes starfaði óslitið frá árinu 1934 til 1991. Barnaskólinn í Reykjanesi starfaði svo áfram til ársins 1996.

Vegalengdin frá Reykjavík er um 320 km, 47 km frá Hólmavík og um 135 km frá Ísafirði.

Myndasafn

Í grennd

Hólmavík
Hólmavík er kauptún við Steingrímsfjörð en þar er verzlunar- og þjónustumiðstöð fyrir Hornstrandir og hefur verið frá síðari hluta 19. aldar. Elzta hú…
Ísafjarðardjúp
Þessi stóri og marggreindi fjörður er nefndur Djúpið í daglegu tali. Hann er um 20 km breiður milli  Stigahlíðar og Grænuhlíðar, en er innar dregur, m…
Ísafjörður
Ísafjörður, sem stendur við Skutulsfjörð, hét að fornu Eyrarhreppur, en var einnig áður nefndur Eyri. Ísafjörður er gjarnan sagður vera höfuðstaður me…

Allar ábendingar eru velkomnar. Reynum að hafa staðreyndir eins réttar og mögulegt er.

Veldu landshluta

nat.is er upplýsinga- og ferðavefur um Ísland sem var stofnaður 1998.  Íslenska útgáfan er is.nat.is.    ( nat@nat.is )