Íslenski ferðavefurinn

  • endursetja

Hálskirkja

Hálskirkja er á prestssetrinu Hálsi í Fnjóskadal. Hún er í Ljósavatnsprestakalli og Þingeyjarprófastsdæmi. Þar voru katólskar kirkjur helgaðar Pétri postula og útkirkjur eru á Draflastöðum og á Illugastöðum. Kirkjan, sem nú stendur, var byggð1859-63. Hún var ófullgerð árið 1860, þegar hún var vígð. Tryggvi Gunnarsson var yfirsmiður. Kirkjan er úr timbri með plægðri súð og sönglofti. Hún var bændakirkja þar til söfnuðurinn tók við henni 1910.

Árin 1923 og 1959-60 var gert við kirkjuna og á áttunda áratugi 20. aldar var settur ljóskross á stafn hennar. Prédikunarstóllinn er frá 1726 og altaristaflan frá 1860. Í klukknaporti eru tvær klukkur. Lárentíus Kálfsson (1267-1330), síðar biskup á Hólum, var prestur á Hálsi um tíma. Hann stofnaði prestaspítala að Kvíabekk í Ólafsfirði. Í landi Háls, niðri við Fnjóská, er gamall þingstaður, Leiðarnes, þar sem sést fyrir búðarústum.

Myndasafn

Í grennd

Fnjóská
Fnjóská er vatnsmikil bergvatnsá sem fellur í suðaustanverðan Eyjafjörð. Hún er veidd með átta stöngum á  aðallaxasvæðinu og nokkrar stangir eru að au…
Kirkjur á hringveginum
Kirkjur á Hringveginum á 6 Dögum Fyrstu árin eftir að hringvegurinn var opnaður (1974) kepptist fólk um að setja hraðamet eða aka aftur á bak allan h…
Kirkjur á Norðurlandi
Listi yfir flestar kirkjur í landshlutanum Akureyrarkirkja …
Ljósavatn í Ljósavatnsskarði
Ljósavatn er stöðuvatn, bær og kirkjustaður í Ljósavatnsskarði nærri mynni Bárðardals. Fram að  aldamótunum 1900 var þar þing- og samkomustaður héraðs…

Allar ábendingar eru velkomnar. Reynum að hafa staðreyndir eins réttar og mögulegt er.

Veldu landshluta

nat.is er upplýsinga- og ferðavefur um Ísland sem var stofnaður 1998.  Íslenska útgáfan er is.nat.is.    ( nat@nat.is )