Fremrinámur eru háhitasvæði í Ketildyngju austan Bláfjalls í Ódáðahrauni. Vegalengdin þangað frá
Reykjahlíð er u.þ.b. 25 km. Dyngjan hét öll Fremrinámur en Þorvaldur Thoroddsen breytti því. Þarna var unninn brennisteinn um árabil, þótt það tæki hátt á fimmta dag, báðar leiðir, að koma honum til Húsavíkur.
Þarna liggur brennisteinninn í tiltölulega þykkur lögum og er hreinni en hann er víðast í öðrum námum í sýslunni. Meginhluti brennisteinsnámsins fór fram rétt austan við gíginn Ketil og í honum sjálfum. Allar brennisteinsnámur í Suður-Þingeyjarsýslu eru nú í ríkiseign. Aðalástæður brennisteinsnáms á Íslandi var þörf Danakonunga fyrir brennistein í byssupúður, því að þeir stóðu í hernaði við Svía o.fl.
Er ekki bara best að ferðast og fræðast um Ísland !!!
Eins og sjá hér að neðan, tengdar færslur er nat.is að reyna að halda jafnframt um gamlar og nýjar heimildir: