Leiðin í Flateyjardal liggur um allt að 220 m háa Flateyjardalsheiði frá norðanverðum Fnjóskadal. Þessi leið er einungis jeppafær að sumarlagi. Nokkurn veginn miðleiðis á heiðinni er sæluhús. Góð veiðiá, Dalsá, á upptök sín á þeim slóðum og rennur norður í Skjálfandaflóa. Á heiðinni er svonefndur Finnbogakambur, sem er kenndur við Finnboga ramma. Sagt er, að 15 óvinir hans hafi setið fyrir honum og honum hafi tekizt að drepa 12 þeirra áður en hjálp barst og þá flúðu þessir þrír, sem eftir lifðu.
Sagan af Finnboga ramma er mjög sérstök og hefst á Flateyjardal, vestan Víkna- og Kinnarfjalla, þar sem hann fæddist. Fyrrum voru fimm bæir í dalnum, sem er kominn í eyði. Búið var að Brettingsstöðum, stærsta býlinu í dalnum, til 1953. Brettingsstaðir voru kirkjustaður um hríð. Kirkjan var flutt þangað frá Flatey árið 1894. Hún var endurvígð í Flatey 1959. Brettingsstaðakirkju var þjónað frá Þönglabakka til 1907 en siðan frá Laufási. Undirlendi er talsvert í dalnum og sumarfagurt mjög. Vetrarríki er mikið á þessum slóðum og samgöngur voru með fádæmum erfiðar allt árið um kring.