Dyngjufellsskáli í Dyngjufjalladal við norðurenda dalsins, norðvestan undir Dyngjufjöllum, var byggt 1993. Skálinn er 3,7 km í suðvestan Lokatinds. Hann hýsir 16 manns í kojum og er kyntur með steinolíukabyssu. Vatn fæst oft úr læk í grennd við skálann. Skálinn er öllum opinn en ætlast er til að göngufólk sitji fyrir um gistingu. Gönguleið frá Dreka um Öskju og Jónsskarð að skálanum og þaðan í Suðurárbotna.
GPS hnit: 65°07.480 – 16°55.280.
Heimild: Vefur FFA.