Blöndulón
Blanda var stífluð við Reftjarnarbungu en þar voru góðar aðstæður til miðlunar. Jafnframt var reist stífla við upptök Kolkukvíslar en hún féll í Vatnsdalsá. Með þessum stíflum myndaðist Blöndulón sem hefur um 412 Gl miðlunarrými og er þriðja stærsta stöðuvatn á Íslandi. Frá Kolkustíflu er vatni veitt um veituskurði og vötn, samtals um 25 kílómetra leið að inntakslóni virkjunarinnar, Gilsárlóni. Lónið er um 5 km2 að flatarmáli með 20 Gl miðlunarrými.
Blönduvatn er staðsett austan Blöndulóns á Eyvindarstaðaheiði. Vatnið er rúmur ferkílómetri að stærð og er talið gott veiðivatn. Mest er af bleikju í vatninu og er hún væn eða allt að fimm pund. Umhverfið er ekta íslenskt heiðarland.
Leiðarlýsing
Vegalengd frá Reykjavík er um 244 km og 75km frá Blönduósi.
Ekið er inn Blöndudal og þaðan upp Kjalveg. Þegar komið er að Blöndulóni er beygt til vinstri inn Mælifellsdalsveg, þaðan ekið áfram og fyrir stífluna og þarnæst beygt til hægri inn Vesturheiðarveg og Vatnið blasir við eftir um 6km. Vatnið liggur við veginn. Mælt er með því að fólk sé á fjórhjóladrifsbílum en þó þurfa þeir ekki að vera breyttir.
Er ekki bara best að ferðast og fræðast um Ísland sem er í boði nat.is !!!
Eins og sjá hér að neðan, tengdar færslur er nat.is að reyna að halda jafnframt um gamlar og nýjar heimildir: