Merkigil á sér merkilega sögu, einkum í tengslum við kjarnakonuna Móníku Helgadóttur. Guðmundur Hagalín skrifaði heila bók um hana: „Konan í dalnum og dæturnar sjö”.
Monika S. Helgadóttir (1901-1988) var fædd á Ánastöðum í Svartárdal, dóttir Helga Björnssonar og Margrétar Sigurðardóttur. Hún settist að á Merkigili í Austurdal í Skagafirði ásamt manni sínum Jóhannesi Bjarnasyni frá Þorsteinsstöðum árið 1932. Jóhannes.
Nýibær er eyðibýli, u.þ.b. 7 km sunnan Ábæjar. Þarna bjó Hjálmar Jónsson, skáld, á árunum 1824-1829. Hann hraktist þaðan fyrir illvilja nágranna sinna og settist þá að á Bólu. Bærinn var í byggð til 1880, en síðan hefur land hans spillzt af vatni og vindum.
Ábær er eyðibýli og fyrrum kirkjustaður austan Austari-Jökulsár. Bærinn fór í eyði árið 1941.Landnámsmaðurinn í Austurdal, Önundur víss, er talinn hafa búið að Ábæ. Draugurinn Ábæjarskotta er kunn úr íslenzkum þjóðsögum. Hún gerði mörgum skráveifur, aðallega í innanverðum Skagafirði. Hún er sögð hafa drepið búsmala, hrætt fólk og jafnvel orðið einhverjum að bana. Henni var spyrt saman við Þorgeirsbola og látin ferðast á húð hans.