Íslenski ferðavefurinn

  • endursetja

Austurdalur í Skagafirði

austurdalur

Austurdalur í Skagafirði er næstum 50 km langur. Hann nær frá ármótum Austari- og Vestari Jökulsáa,  sem Héraðsvötn myndast. Austurdalur er þröngur og djúpur með hamrabeltum beggja vegna (1000m). Gróður nær upp eftir hlíðum og leifar skóga finnast í Jökulsárgili, innan Merkigils og í Fögruhlíð, lítið eitt sunnan miðs dals. Austari-Jökulsá fellur víðast um mikil gljúfur um dalinn. Hún verður til úr mörgum kvíslum úr Hofsjökli. Hin lengsta þeirra, Jökulkvísl / Hnjúkskvísl, kemur undan Klakksjökli. Áin er vatnsmikil og erfið yfirferðar. Hún er þó oftast fær fjallabílum undir Illviðrahnjúkum. Árið 1970 var hún brúuð vestan Laugafells með hluta brúarinnar yfir Jökulsá á Sólheimasandi. Einnig er brú yfir ána hjá Merkigili. Fyrrum var Austurdalur allþéttbyggður, 20-30 bæir.

Merkigil á sér merkilega sögu, einkum í tengslum við kjarnakonuna Móníku Helgadóttur. Guðmundur Hagalín skrifaði heila bók um hana: „Konan í dalnum og dæturnar sjö”.

Monika S. Helgadóttir (1901-1988) var fædd á Ánastöðum í Svartárdal, dóttir Helga Björnssonar og Margrétar Sigurðardóttur. Hún settist að á Merkigili í Austurdal í Skagafirði ásamt manni sínum Jóhannesi Bjarnasyni frá Þorsteinsstöðum árið 1932.

Nýibær er eyðibýli, u.þ.b. 7 km sunnan Ábæjar. Þarna bjó Hjálmar Jónsson, skáld, á árunum 1824-1829. Hann hraktist þaðan fyrir illvilja nágranna sinna og settist þá að á Bólu. Bærinn var í byggð til 1880, en síðan hefur land hans spillzt af vatni og vindum.

Ábær er eyðibýli og fyrrum kirkjustaður austan Austari-Jökulsár. Bærinn fór í eyði árið 1941. Landnámsmaðurinn í Austurdal, Önundur víss, er talinn hafa búið að Ábæ. Draugurinn Ábæjarskotta er kunn úr íslenzkum þjóðsögum. Hún gerði mörgum skráveifur, aðallega í innanverðum Skagafirði. Hún er sögð hafa drepið búsmala, hrætt fólk og jafnvel orðið einhverjum að bana. Henni var spyrt saman við Þorgeirsbola og látin ferðast á húð hans.

Myndasafn

Í grennd

Ábæjarkirkja Skagafirði
Ábæjarkirkja er í Mælifellsprestakalli í Skagafjarðarprófastsdæmi. Ábær, á eystri bakka Austari-Jökulsár,  verið í eyði síðan 1941. Steinsteypt kirkja…
Austurdalur-Merkigil-Nýibær-Ábær
Merkigil á sér merkilega sögu, einkum í tengslum við kjarnakonuna Móníku Helgadóttur. Guðmundur  Hagalín skrifaði heila bók um hana: „Konan í dalnum o…
Goðdalakirkja
Goðdalakirkja er í Mælifellsprestakalli í Skagafjarðarprófastadæmi. Goðdalir eru bær, kirkjustaður og  í neðanverðum Vesturdal. Þar var kirkja helguð …
Héraðsvötn
Héraðsvötn eru mestu fallvötn í Skagafirði. Þau verða til við samruna Jökulsánna austari og vestari sem   báðar koma undan Hofsjökli. Austari áin er v…
Varmahlíð, Skagafjörður
Þegar ekið er niður þjóðveg 1 til austurs um Stóra-Vatnsskarð er komið í Varmahlíð í hlíðum Reykjarhóls. Þar er upplýsingaþjónusta fyrir ferðamenn. Ja…
Vesturdalur
Vesturdalur í Skagafirði er í miðju þriggja dala suður úr Skagafirði. Hann er búsældarlegur nyrzt með góðu undirlendi og hálsum og sunnar er hann hlíð…

Allar ábendingar eru velkomnar. Reynum að hafa staðreyndir eins réttar og mögulegt er.

Veldu landshluta

nat.is er upplýsinga- og ferðavefur um Ísland sem var stofnaður 1998.  Íslenska útgáfan er is.nat.is.    ( nat@nat.is )