Íslenski ferðavefurinn

  • endursetja

Arnarbæli

Bæjahverfið, sem Arnarbæli er hluti af, fékk nafnið Arnarbælishverfi. Arnarbælisforir eru mýrlendi á  þessu frjósama landsvæði. Mikill vatnsagi gerði bændum erfitt fyrir og tilraunir voru gerðar til að ræsa vatnið fram. Geldneyti frá Arnarbæli voru gjarnan látin ganga á Hellisheiði á sumrin áður en afurðirnar voru seldar til Reykjavíkur. Margir áttu stundum fótum fjör að launa á leiðinni yfir heiðina undan galsafengnum eða jafnvel mannýgum nautum fyrrum.

Einhver mesti höfðingi Sturlungaaldar, Þorvarður Þórarinsson af Svínfellingaætt, fluttist austan af landi að Arnarbæli 1289. Hann bjó þar til dauðadags í 7 ár. Margir álíta, að hann hafi notað þennan tíma til að rita Njálssögu.

Arnarbæliskirkja stóð til ársins 1909 og þar var löngum prestssetur. Þetta ár var Reykjakirkja líka lögð niður og báðar sóknirnar lagðar til Kotstrandar. Margir merkisprestar sátu staðinn, s.s. Jón Daðason, sem flutti frá Djúpi 1641 og bjó þar til dauðadags 1676. Hann kenndi séra Eiríki Magnússyni, aðstoðarpresti og síðar sóknarpresti í Vogsósum, vísindi í 9 ár. Séra Jón varð að verjast mörgum sendingum frá fyrrum sóknarbörnum fyrir vestan, sem bekktust við hann, líkt og séra Snorra í Húsafelli.

Annálar 20. apríl 1706 segja frá jarðskjálfta, sem olli hruni margra bæja á Suðurlandi. Arnarbælisbærinn hrundi til grunna og presturinn, Hannes Erlingsson komst út um sprunginn vegg eða þak hálfnakinn með ungabarn. Teinæringur, sem prestur gerði út frá Þorlákshöfn, fórst um svipað leyti með 11 manna áhöfn, kvæntum hjáleigubændum úr Arnarbælishverfi. Bæjarhúsin hrundu aftur til grunna í jarðskjálftunum 6. september 1896.

Forn og stór rúst á Þingholti í Arnarbælislandi er friðuð.

Myndasafn

Í grennd

Hveragerði
Upphaf byggðar í Hveragerði má rekja til ársins 1902, þegar ullarkembistöð var reist við Reykjafoss. Hveragerði er byggt á jarðhitasvæði og þess vegna…
Kaldaðarnes
Kaldaðarnes er og var stórbýli austan Ölfusár í Flóa. Ein elzta heimild um staðinn er ferjumáldagi Kaldaðarness frá aldamótunum 1200. Þar er kveðið á …
Kotstrandarkirkja
Kotstrandarkirkja er í Hveragerðisprestakalli í Árnesprófastsdæmi. Hún var byggð 1909 og vígð 14.   nóvember sama ár. Hún er úr járnklæddu timbri, um …
Ölfus
Austanverð mörk sveitarfélagsins Ölfus liggja austan Alviðru undir Ingólfsfjalli og um Ölfusá til sjávar. Vestasti bær er Hlíðarendi og sveitarfélagið…
Selfoss
Selfoss er landnámsjörð Þóris Hersis Ásasonar. Selfosskaupstaður við Ölfusá, sunnan Igólfsfjalls, fór að   byggjast árið 1891, þegar hengibrú var lögð…
Sögustaðir Suðurland
Ýmsir staðir tengdir sögu landshlutans Álfaskeið Álftaver Almenningar Alviðra Arnarbæli Áshildarmýri Ásólf…

Allar ábendingar eru velkomnar. Reynum að hafa staðreyndir eins réttar og mögulegt er.

Veldu landshluta

nat.is er upplýsinga- og ferðavefur um Ísland sem var stofnaður 1998.  Íslenska útgáfan er is.nat.is.    ( nat@nat.is )