Goðdalur er eyðibýli í samnefndum dal inn úr Bjarnarfirði syðra.
Munnmæli herma, að þar hafi staðið hof á heiðnum tíma og álagablettir eru víða. Ein sjaldgæfasta jurt landsins, stinnasef (Juvus spuarrosus), vex þar og víða eru heitar uppsprettur og laugar.
Bærinn fór í eyði í desember 1948, þegar snjóflóð fell á hann úr Hólsfjalli. Allt fólkið var heima nema þrjú börn hjónanna, sem voru í skóla, þegar ósköpin dundu yfir. Veðrið var afspyrnu slæmt í marga daga, þannig að enginn kom til Göðdals fyrr en fjórum dögum eftir flóðið. Aðeins bóndinn og dóttir hans voru með lífsmarki en stúlkan dó skömmu síðar.
Sex manns fórust í snjóflóðinu og þess var minns 1998, þegar minnisvarði var afhjúpaður neðan Bjarnarfjarðarháls, u.þ.b. 300 m frá neðstu beygjunni.
Mynd: Ásrún Elmarsdóttir