Brimnes var bær á Upsaströnd. Lönd hans, Upsa, Hrísa og Böggvisstaða liggja nú undir Dalvíkurkaupstað. Svarfdælasaga segir frá vígi Karls hins rauða og fleiri við Brimnesá og að hann hafi verið lagður í haug með skipi.
Norðan Brimnesár fannst merkur kumlateigur. Daniel Bruun og Finnur Jónsson rannsökuðu hann árið 1909 og fundu 13 grafir, þar af eitt bátkuml. Síðan hefur bætzt í safnið, s.s. bátkuml u.þ.b. 300 m frá kumlateignum, og ýmsir munir komið í ljós. Talið er að hið forna Hyltinganaust hafi verið við Brimnesá.