Torfastaðakirkja er í Skálholtsprestakalli í Árnesprófastsdæmi. Hún var vígð á nýársdag 1893 að viðstöddum 335 manns, sem var tvöföld tala sóknarbarna þá.
Prestakall Torfastaða var víðlent og erfitt yfirferðar vegna Tungufljóts, en útkirkjur voru í Bræðratungu og Haukadal og stundum í Úthlíð líka. Þar að auki voru fyrrum kirkjur í Einholti og á Felli og mörg bænhús. Allt fram að plágunni miklu í upphafi 15. aldar voru prestar við allar alkirkjur. Torfastaðaprestar þjónuðu Skálholti frá 1785, en Ólafsvallaprestar 1875-1925.