Í Svarfaðardalsá er mikil og góð sjóbleikjuveiði, slangur af urriða og einstaka lax. Bleikjan er væn og veiðisvæðin eru fimm með tveimur stöngum hvert. Áin er vinsæl og það þarf að panta veiðileyfin með fyrirvara. Óshólmasvæði árinnar er friðland, sem er mjög vinsælt meðal fuglaskoðara og annarra, sem vilja njóta friðsældar og fegurðar svæðisins. Gistimöguleikar eru allmargir eins og sést í ferðavísinum fyrir Dalvík.