Íslenski ferðavefurinn

  • endursetja

Síldarhátíð á Siglufirði

Siglufjörður

Á Siglufirði er síldarminjasafn og síldarhátíðir eru haldnar þar á hverju sumri. Þá er sett á svið  síldarsöltun eins og hún gerðist fyrr á árum og klæðast allir þátttakendur fatnaði frá þeim tíma. Verbúð – síldarbraggi – hefur verið endurbyggð í upprunalegri mynd og margt fleira gert til að minnast velmegunaráranna þegar síldinni var landað og hún unnin á Siglufirði á þessu blómaskeiði bæjarins.

Siglfirðingar tala oft um tvenn norsk landnám, hið fyrra, þegar Þormóður rammi nam land um aldamótin 900, og hið síðara, þegar Norðmenn gerðu Siglufjörð að síldarhöfuðstað heimsins árið 1903. Á fjörutíu ára tímabili varð lítið og fámennt þorp að fimmta stærsta bæjarfélagi landsins með rúmlega 3000 íbúa. Þessi þróun byggðist á síldinni. Það var saltað á 23 plönum og lýsi og mjöl var brætt í fimm verksmiðjum. Siglufjarðarhöfn var meðal hinna mikilvægustu á landinu og útflutningsverðmætin þaðan námu oft 20% af heildarútflutningi landsins. Það ríkti sannkölluð „gullgrafarastemmning” á Siglufirði á þessu tímabili. Síldarspekúlantar komu og fóru, annaðhvort vellríkir eða sárafátækir, og í tímans rás fengu tugir þúsunda verkamanna vinnu þar. Þegar illa viðraði lágu hundruð síldarbáta frá ýmsum löndum í höfninni eða úti á firði. Fólksfjöldinn í bænum var þá eins og í stórborg og óvíða litskrúðugra og líflegra.

Myndasafn

Í grennd

Siglufjörður
Siglufjörður var fyrrum kallaður síldarhöfuðstaður heimsbyggðarinnar, og það ekki að ástæðulausu.  Núna er þar mikil útgerð og fiskvinnsla og ein stær…
Síldarminjasafnið Siglufirði
Roaldsbrakki (verbúð og fiskverkunarhús) var byggður árið 1907 og dregur nafn af eigendunum, Olav og  Elas Roald frá Álasundi í Noregi. Þeir ráku síld…
Síldín kom og síldin Fór, Síldarleitin!!!
"Síldin kemur og síldin fer" Svipull er sjávarafli - góð og slæm síldarsumur skiptust á þótt hin góðu hafi verið tíðari. Eftir lélega síldveiði á áru…
Sögustaðir Norðurland
Ýmsir staðir tengdir sögu landshlutans Ábæjarkirkja Aðaldalur Akureyrarflugvöllur Akureyri Innbærinn Árbæjarkirkja Skaga…

Allar ábendingar eru velkomnar. Reynum að hafa staðreyndir eins réttar og mögulegt er.

Veldu landshluta

nat.is er upplýsinga- og ferðavefur um Ísland sem var stofnaður 1998.  Íslenska útgáfan er is.nat.is.    ( nat@nat.is )