Laxárvatn í Laxárdal í Dölum er ekki nema 600 x 700 m að stærð og hluti af Laxá í Dölum á þar upptök sín. Vatnið er í 150 m hæð yfir sjó.
Veiðileyfin gilda í öllu vatninu og fjöldi þeirra er ekki takmarkaður. Þar er hægt að krækja í urriða og þeir eru oftast 1-4 pund. Til að komast að vatninu er best að ganga u.þ.b. 500 m frá vegi nr. 59.
Vegalengdin frá Reykjavík er u.þ.b. 181 km. um Hvalfjarðargöng og 29 km frá Búðardal.