Íslenski ferðavefurinn

  • endursetja

Laxá í Dölum

Kemur upp í vötnum og mýrardrögum á Laxárdalsheiði. Fellur í Hvammsfjarðarbotn og er ein af  laxveiðiám landins. Hún er veidd með 6 til 8 dagstöngum og hefur gefið allt að 1800 laxa á sumri. Það hefur þó ekki verið vaninn síðustu ár. Þó náði áin rétt yfir 1.000 löxum 1996 og eitthvað um 700 löxum 1997. Árnar í Dölum hafa allar verið í lægð síðustu ár, bæði vegna óhagstæðs árferðis og einnig vegna hömlulausra sjávarveiða hafbeitarstöðvar í Hraunsfirði. Þetta ku standa til bóta. Laxá er annars afar viðkvæm fyrir þurrkum og verður oft og iðulega mjög vatnslítil.

 

Myndasafn

Í grennd

Búðardalur
Búðardalur er kauptún við innanverðan Hvammsfjörð. Þar er miðstöð þjónustu við landbúnað í Dalasýslu og víðar. Fyrsta íbúðarhúsið var reist í Búðardal…
Veiði Vesturland
Stangveiði á Vesturlandi. Hér er listi yfir flestar laxveiðiár og silungsár og -vötn. Laxveiði Vesturlandi …

Allar ábendingar eru velkomnar. Reynum að hafa staðreyndir eins réttar og mögulegt er.

Veldu landshluta

nat.is er upplýsinga- og ferðavefur um Ísland sem var stofnaður 1998.  Íslenska útgáfan er is.nat.is.    ( nat@nat.is )