Íslenski ferðavefurinn

  • endursetja

Laxá-Brúará, Skaftárhreppi

Laxá er í Skaftárhreppi, V.-Skaftafellssýslu. Hún er silfurtær, stutt að komin og fellur um fagurt umhverfi, þar sem skiptist á klettar og gróið land.

Hringvegur nr. 1 liggur yfir ána neðanverða. Brúará er í Hörgslandshreppi og er lengra að komin en Laxá. Umhverfið er margbreytilegt, gróið að mestu. Hringvegur nr. 1 fer yfir ána neðarlega. Brúará liggur til jarðanna Kálfafellskots og Maríubakka. Bæði Laxá og Brúará renna í Djúpá. Veiðin er allvænn sjóbirtingur.

Vegalengdin frá Reykjavík er um 300 km og u.þ.b. 27 km frá Klaustri.

Myndasafn

Í grennd

Kálfafellskirkja Fljótshverfi
Kálfafellskirkja er í Kirkjubæjarklaustursprestakalli í Skaftafellsprófastsdæmi (Fljótshverfi). Hún var byggð á árunum   1897-1898 og vígð 13. nóvembe…
Kirkjubæjarklaustur
Kirkjubæjarklaustur á Síðu hét áður Kirkjubær og var þar löngum stórbýlt og má segja að svo sé enn. Kauptún hefur myndazt þar og nefnt í daglegu tali …
Skeiðará
Skeiðará er um 30 km löng jökulá sem rennur úr Skeiðarárjökli á sunnanverðum Vatnajökli og kvíslast yfir Skeiðarársand út í sjó. Vegna stöðugrar bráðn…
Veiði Suðurland
Stangveiði á Suðurlandi. Hér er listi yfir flestar laxveiðiár og silungsár og veiðivötn. Laxveiði Suðurlandi Brúará – Hagós Brúará – …

Allar ábendingar eru velkomnar. Reynum að hafa staðreyndir eins réttar og mögulegt er.

Veldu landshluta

nat.is er upplýsinga- og ferðavefur um Ísland sem var stofnaður 1998.  Íslenska útgáfan er is.nat.is.    ( nat@nat.is )