LAUGAFELLSKÁLAR FFA
Laugafell
Ferðavísir
Varmahlíð (F-752) og um Vesturárdal 93 km, Akureyri (F-821) um Eyjafjarðardal 82 km, <Laugafell> Fjórðungsalda 31km Kiðagil 38 km.
Laugafellskálinn var byggður á árunum 1948-50. Hann stendur sunnan botns Eyjafjarðardals og u.þ.b. 15 km norðaustan Hofsjökuls. Skálinn er hitaður með hveravatni allt árið. Í honum eru öll nauðsynleg áhöld og eldunartæki. Skálavörður FFa er þar allt sumarið. Gistirými er fyrir 15 manns en 20 manns, ef svefnloft snyrtihúss er talið með. Hjá skálanum er tjaldstæði, sundlaug og upphitað snyrtihús. Frá Laugafelli liggja slóðir til Eyjafjarðar, Skagafjarðar, Bárðardals og suður Sprengisand.
Heimild: Vefur FFA.
og nat.is