Kleifarvatn er stærsta vatnið á Reykjanesskaga og liggur á milli Sveifluháls og Vatnshlíðar. Það er þriðja vatnið á Suðurlandi, 9,1 km², og eitt af dýpstu vötnum landsins, 97m. (7. dýpsta vatn landsins) Það hefur lítið aðrennsli en ekkert frárennsli. Silungsseiði af bleikjustofni úr Hlíðarvatni í Selvogi voru sett í vatnið á sjötta áratugnum og þau hafa dafnað vel, þannig að veiði er tíðum ágæt. Besti veiðistaðurinn er syðst í vatninu þar sem heitt jarðvatn frá hverasvæðum sytrar út í vatnið.
Kleifarvatn er mjög kalt frá náttúrunnar hendi, en volgrur þessar skapa bleikjunni ákjósanleg skilyrði. Þar er líka lítið veiðihús. Eldbrunnið og hrjóstrugt umhverfi vatnsins er bæði sérstakt og fagurt. Í jarskjálftunum 17. og 21. júní 2000 opnuðust sprungur á vatnsbotninum og vatnsborðið lækkaði verulega en byrjaði að hækka aftur árið 2004. Árið 2007 er talið að fyrra vatnsborð hafi náðst vegna mikillar úrkomu frá ágústmánuði til áramóta, en eðlileg hæð þess yfir sjávarmáli var 139-140 metrar. Talið er, að sprungan hafi fyllzt eða stíflazt af seti.
Jarskjálftar við Kleifarvatn eru oft þar, ekki sýst eftir eldgosin á Reykjanesi 2021- 2023.
Veiðitímabilið er frá 1. maí til 30. september.
Veiðivörður / umsjónarmaður á staðnum:
Stangaveiðifélag Hafnarfjarðar
Agn: Fluga, maðkur og spónn.
Kleifarvatn er í landi Hafnarfjarðar.
Vegalengdin frá Reykjavík er 34 km.