Hlíðarendakirkja er í Breiðabólsstaðar-prestakalli í Rangárvallaprófastsdæmi. Hún var byggð 1897 úr timbri og járnvarin og tekur 150 manns í sæti. Árin 1973-74 var gert vel við hana.
Ólafur Túbals, listmálari, frá Múlakoti gerði helgimyndirnar í henni. Silfurkaleikurinn er frá miðöldum. Katólskar kirkjur voru helgaðar Þorláki biskupi helga. Hlíðarendakirkja var aflögð 1802 og sóknin lögð til Teigs en þar og í Eyvindarmúla voru kirkjurnar lagðar niður 1896 og sóknirnar sameinaðar með kirkju að Hlíðarenda.